fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Þetta frumvarp þessarar ríkisstjórnar er af sama meiði og frumvarp fyrri ríkisstjórnar sambærilegs efnis. Það er hluti af löngu og langdregnu leikriti stjórnvalda og framkomu við einkarekna fjölmiðla. Það hefur verið til þess fallið og í rauninni sett fram með það að markmiði að þæfa umræðu um vandamál sem er mjög brýnt að leysa, sem eru starfsskilyrði einkarekinna fjölmiðla í þessari samkeppni við alltumlykjandi ríkisfjölmiðilinn RÚV á öllum rásum. Því miður er það þannig að menn eru að halda þessu leikriti áfram hér. Ég fagna því hins vegar að það sé boðað frumvarp og að einhver vinna sé í gangi af hálfu hæstv. ráðherra í þessum efnum. Af þingmálaskrá má hins vegar greina og lesa það út að það frumvarp sem boðað er í janúar muni í mjög litlu ef nokkru aðstoða eða bæta rekstrarskilyrði einkarekinna fjölmiðla. Það er í því ljósi sem ég greiði ekki atkvæði (Forseti hringir.) með þessu frumvarpi, hvorki nú né áður fyrr.