157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:40]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég var nú að hugsa um að fara í ræðu hér við 3. umræðu eftir þær umræður sem ég heyrði hér frá hv. þingmönnum og hæstv. ráðherra Samfylkingarinnar áðan. En hér erum við að fjalla um styrki til fjórða valdsins, eða fjölmiðla. Að það sé verið að deila um það hvernig eigi að ráðstafa því og hvað hefur áhrif á það er alvarlegt mál. Það er á þeirri forsendu sem ég hef aldrei getað greitt atkvæði með þessu máli, hvort sem ég var hluti af stjórnarflokkum eða ekki. Það hefur líka verið vandamál að takast á við fílinn í herberginu, sem er Ríkisútvarpið, þó að við höfum gert margar tilraunir til þess. Til dæmis var gerður þjónustusamningur við Ríkisútvarpið þegar Sjálfstæðisflokkur síðast í menntamálanefndinni. Það tókst á þeim tíma. Það hefur ekki alltaf verið mikill vilji hér í þinginu til að gera breytingar. En þó komum við þingmennirnir því ítrekað í gegnum fjárlaganefnd á síðasta kjörtímabili að það ætti að setja Ríkisútvarpið á fjárlög eins og aðrar stofnanir ríkisins og fleira. (Forseti hringir.) En við þurfum bara sem þingheimur að takast á við þetta mál til að við komumst út úr þessu rugli hér í dag. Það er prinsippmál að eitt lýðræði sé ekki að skipta sér af öðru.