fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Staðan á fjölmiðlamarkaði er mjög alvarleg. Það er líka alvarlegt hvernig ríkisstjórnin gengur fram gagnvart þeim sem hún er ósátt við. Það er alvarlegt. Það er alvarlegt þegar menn nota völd sín með þeim hætti. Nú er það þannig að allir geta flett upp ummælum forystumanna ríkisstjórnarinnar um ákveðna fjölmiðla — allir. Og þeir hafa ekkert farið í felur með að þeir líti svo á að sumir fjölmiðlar séu bara þess eðlis og framgangan sé þess eðlis að það sé sjálfsagt að mæta því með einhverjum hætti.
Nú vona ég, virðulegi forseti, að hæstv. ríkisstjórn muni gera það sem hún segist ætla að gera. Við vitum alveg hver (Forseti hringir.) fíllinn í herberginu er. Þú ert með stofnun, ríkisstofnun, sem getur gengið fram eins og hún vill á auglýsingamarkaði, og gerir það mjög freklega, og er með slík (Forseti hringir.) belti og axlabönd þegar kemur að fjármögnun að það er algjört einsdæmi. Ég vona að við viljum öll sjá frjálsan fjölmiðlamarkað þar sem stjórnvöld geta ekki ákveðið það (Forseti hringir.) hverjir lifa og hverjir deyja.