jarðakaup erlendra aðila.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar spurningu. Ég held að það sé hlutverk okkar, sama hvaðan úr flokki við komum, að koma öll saman og ræða þessi mál af því að ákvarðanir sem við tökum í þessum málefnum ná lengra heldur en ein eða tvær eða þrjár ríkisstjórnir. Við erum að marka langtímastefnu í þessum málaflokki og ég held að ég geti bara fullyrt það hér að Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki skorast undan því að taka þátt í þeirri vinnu, finna því einhvern farsælan farveg þar sem við erum að horfa til þess að útlendingar geti að sjálfsögðu átt hér einhverjar jarðspildur, keypt sér hús, byggt sér hús og ég geri ekki lítið úr því að það getur haft heilmikil efnahagsleg áhrif í litlum fámennum sveitum að fá slíkar fjárfestingar inn í samfélagið. Á hvaða skala og af hvaða stærð það er og hvaða skilyrði þarf að uppfylla held ég að við þurfum að ræða. Þannig að já, ég held að Sjálfstæðisflokkurinn muni að sjálfsögðu taka þátt í þeirri vinnu.