157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

73. mál
[12:37]
Horfa

Flm. (Halla Hrund Logadóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fagna þeirri afstöðu hv. þingmanns að vera tilbúinn til að taka þátt í þeirri vinnu. Ég heyri að það er ákveðin sýn sem hv. þingmaður hefur varðandi útfærslur. Það er vissulega rétt sem hv. þingmaður kom inn á að löggjöf var víða opnuð algerlega, t.d. opnuð miklu meira heldur en hún er í dag á Norðurlöndunum. Svo hafa menn verið að taka skref til baka og það á t.d. við um Norðmenn sem hafa verið að taka skref til baka, þannig að lykilþátturinn fyrir okkur er að útfæra þessi skref til baka.

Ég vil segja að ég er mjög stíf á því varðandi jarðnæði og þetta eignarhald inn að möttli, sem jarðefni, jarðhiti, vatn og ræktarlandið ofan við tilheyrir auðvitað sömuleiðis, að það sé í íslenskri eigu. Mér heyrist að hv. þingmaður sjái tækifæri í því að útfæra einhvers konar nýtingarleyfi. Er það rétt skilið hjá mér hvað það varðar?