157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

73. mál
[12:41]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Virðulegur forseti. Hér stendur gamall fréttamaður og verður þess var að hér er pólitískur samhljómur á ferðinni á milli ólíkra stjórnmálaflokka. Það er vel. Það er góður bragur á því að menn staldri við og skoði þennan vandmeðfarna málaflokk í þaula vegna þess að hagsmunirnir eru ríkulegir. Ég fagna framlagningu þessa máls og tel að það séu góðar líkur á því að flestir ef ekki allir stjórnmálaflokkar á Alþingi geti komið sér saman um að skoða þær hættur sem eru til staðar í þessum málaflokki. Það er komið inn á nokkrar þeirra í þingsályktunartillögunni, t.d. hvað varðar áhuga á jarðakaupum í tilgangi orkunýtingar og innviða sem fer vaxandi, en dæmi um slíkt má finna í vatnsafli, vindi og jarðhita. Græna orkan er olía framtíðarinnar og eignarhald á slíkum auðlindum þarf að hugsa til langs tíma, svo ég vitni orðrétt í þingsályktunartillöguna. Hér má til viðbótar nefna veiðiréttindi í ám og vötnum víða á landinu. Það er mikið í húfi og það er ekki sjálfgefið að erlendir aðilar og eftir atvikum innlendir auðugir aðilar festi kaup á stórum skikum landsins vegna þess að ásýnd landsins, saga og menning, og eftir atvikum atvinnulíf, er í húfi.

Mér geðjast ekki sú framtíðarsýn sem blasir við að óbreyttu á Íslandi og mun e.t.v. gerast á þessari öld að 90% Íslendinga búi í mjög nánu þéttbýli á suðvesturhorni landsins en 10% landsmanna hringinn í kringum landið, úti á öðrum landsvæðum. Hvað er í húfi? Í húfi eru heilu atvinnugreinarnar, sjávarútvegur og landbúnaður, svo dæmi séu tekin, en einnig ferðaþjónustan, sem er sú atvinnugrein sem hefur vaxið hraðast á Íslandi á undanliðnum árum og er það vel. Hvernig mun Ísland hins vegar blasa við ferðaþjónustunni þegar líða tekur á þessa öld ef einungis 10% landsmanna eru búsettir úti á landi? Þjónusta verður af skornum skammti, það er augljóst. Ásýnd landsins, ásýnd atvinnulífs, menningar og þjónustu mun líka laskast til verulegs skaða fyrir orðspor landsins og áhuga fólks á að heimsækja land þar sem heimafólk hefur flúið á einn stað í umferðaröngþveitið á suðvesturhorninu. Þess vegna þurfum við að horfa til þess að það má ekki fara svo fyrir Íslandi að heilu og hálfu dalirnir, heilu og hálfu víkurnar, heilu og hálfu firðirnir verði í eigu innlendra eða eftir atvikum erlendra auðkýfinga sem komi öðru hvoru til landsins til að skoða yfir dalinn sinn, ána sína, fjörðinn sinn og víkur en engin önnur þjónusta blasir við ferðamönnum og hvað þá heimamönnum. Þetta er hættan.

Herra forseti. Aðrar þjóðir, þar á meðal innan Evrópska efnahagssvæðisins, hafa goldið varhuga við þessari þróun. Það hefur verið nefnt hér í þessari pontu að Norðmenn hafi stigið skref til baka. Hvað gera Danir svo dæmi sé tekið? Þeir áskilja landeigendum þann rétt og þær skyldur að atvinnustarfsemi fari fram á þeim jörðum sem keyptar eru. Það finnst mér ósköp eðlilegt, eða veljum við kannski hinn kostinn, að þessar jarðir, kannski fegurstu jarðir landsins, standi auðar inn í ókomna áratugi og aldir? Er það kosturinn sem okkur finnst vera boðlegur? Nei. Þess vegna þurfum við að spyrna við fótum. Þetta er allt spurning um ásýnd landsins, ásýnd atvinnuvega og hlutskipti þess fólks sem kýs blessunarlega áfram að búa úti á landi og vill halda þar uppi þjónustustigi, vill halda þar uppi menningu og ríku atvinnulífi. Það allt er í húfi. Það allt er í húfi ef við förum sofandi að þessum feigðarósi. Það er gríðarlega mikið í húfi.

Hér hefur hv. þm. Jens Garðar Helgason nefnt skattlagningu. Það er eðlilegt innlegg í þessa umræðu. Eiga erlendir auðkýfingar, og eftir atvikum innlendir, að njóta skattfrelsis á Vopnafirði, Skagafirði, Arnarfirði? Ég get nefnt fleiri firði landsins. Eiga þeir að fá ókeypis þjónustu hér á landi hvað vegina varðar, hvað læknisþjónustu varðar, hvað aðra þjónustu varðar? Er eðlilegt að bjóða upp á skattfrelsi? Ég segi nei, við hin borgum skatta og skyldur og erum ekki að kvarta yfir því. Þess vegna er mjög eðlilegt að þessir aðilar, sem eru að kaupa upp stóran hluta landsins, gjaldi fyrir þjónustuna sem þeir fá frá landi og þjóð. Það er ósköp eðlilegur hlutur. Skattar eru ekki óeðlilegir, þeir eru eðlilegir. En hér verður líka að hafa í huga að við erum komin æðilangt í þessu ferli. Svo ég vitni aftur í hv. þm. Jens Garðar Helgason, þá nefnir hann 1,6% landsins sem nú þegar eru í eigu erlendra auðkýfinga, í langflestum tilvikum, (JGH: Einn maður. )1,6%, já, í eigu eins auðkýfings. Það er gríðarlega stór póstur í landinu og til að setja það í samhengi er það stærra landsvæði heldur en sem nemur skógum landsins. Það er stærra landsvæði heldur en sem nemur skógum landsins sem einn erlendur auðkýfingur á Íslandi á. Þetta er augljóst mál. Það er augljóst mál miðað við það sem er í húfi — jarðhita, vindorku, veiðirétt og annað í þeim efnum, allt eru þetta gríðarlega mikil auðæfi — að ásóknin verður miklu meiri á komandi árum heldur en við getum ímyndað okkur, vegna þess að hér eru til sölu ríkuleg verðmæti sem er ekki endilega hægt að fá annars staðar. Það er búið að draga strik í sandinn víða í nágrannalöndum okkar í þessum efnum og ég nefni þar sem dæmi Norðmenn. Freistnivandinn er hins vegar gríðarlegur. Freistnivandinn er gríðarlegur. Hvað myndi sá sem hér stendur gera ef hann væri fátækur bóndi á Íslandi og ætti gríðarlegt jarðnæði? Ég nefni sem dæmi Reykjahlíðarjörðina í Mývatnssveit, eina stærstu jörð á landinu sem innifelur einhverja mestu náttúrugersemi sem Ísland getur státað af. Hvað ef ég væri fátæki bóndinn sem ætti það land og til mín kæmi erlendur auðkýfingur eða eftir atvikum innlendur og byðist til að kaupa þetta á hæsta verði? Hver er freistnivandinn? Hann er augljós. Bændur eru einmitt í því hlutskipti að vera margir hverjir fátækir, þó að það eigi blessunarlega ekki við um alla, en það er ósköp eðlilegur freistnivandi fyrir þá að selja jörð sína og andlag þess er að heilu og hálfu hlutar landsins fari í hendur aðila sem, eins og ég gat um áðan, koma hingað sem gestir öðru hvoru til landsins til að horfa á eign sína og njóta kalda loftsins og víðernanna sem Ísland státar af. Þetta er allt saman í húfi.

Þess vegna, herra forseti, fagna ég framlagningu þessa máls. Ég hef trú á því að flokkar á þingi geti komið sér saman um, allir sem einn, að skoða þetta mál af hlutlægni, heiðarlega, vegna þess að það er skylda okkar gagnvart börnum okkar, barnabörnum og ókomnum kynslóðum að staldra hér við. Ég ítreka það að ásýnd landsins er í hættu. Ásýnd landsins er í hættu. Við skulum ræða þetta hér í þinginu af yfirvegun. Það er tími til kominn.