jarðakaup erlendra aðila.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni fyrir hans fyrra svar. Þá langar mig aðeins að fara aftur í það sem við vorum að ræða varðandi þetta frumvarp og að takmarka stærð, sem sagt að raunverulegir og tengdir eigendur geti í rauninni ekki átt meira en einhverja ákveðna stærð. Ég kastaði því hér fram að við myndum hafa það þannig að þá væru viðkomandi skattskyldir á Íslandi. Ég ætla að fá að gera athugasemdir við það sem hv. þingmaður sagði hér áðan, að íslenskir landeigendur væru ekki að borga skatta. Auðvitað borga þeir skatt af því að þeir eru skattskyldir á Íslandi. Þannig að þótt þeir eigi land þá borga þeir sína skatta og skyldur hér, sem er þá stigsmunur. Maður hefur oft velt fyrir sér fyrir þessum málum, kannski ekki kafað svona djúpt ofan í þau, en ég hef velt þeim fyrir mér eins og með skattskylduna sem ég nefndi áðan.
Ég hef líka velt því fyrir mér að ef maður er ekki bóndi eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, sem er virðulegur sauðfjárbóndi á Grund í Grýtubakkahreppi — ef ég myndi kaupa jörðina og nota hana sem sumarhús, ætti ég þá að borga önnur fasteignagjöld af viðkomandi jörð sem er ekki í ábúð? Gæti það verið ákveðin leið að ef ég ætla að kaupa hér 1.000 hektara jörð, ef ég er ekki að nýta hana í ábúð eða nýti hana ekki í matvælaframleiðslu eða landbúnað eða eitthvað annað, þá borgi ég þá bara einhver önnur gjöld af þessari jörð, bara sem dæmi? Ég velti því fyrir mér. Með skattana vil ég segja að auðvitað er það þannig að íslenskir landeigendur borga skatta og skyldur á Íslandi þannig að ég geri greinarmun á því. Ég velti því hins vegar fyrir mér og hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér, að ef við setjum einhvers konar takmarkanir og ef þú ferð upp fyrir þá takmörkun, þá þurfum við að uppfylla einhver skilyrði, t.d. eins og með skattskyldu (Forseti hringir.) eða annað.