jarðakaup erlendra aðila.
Frú forseti. Ég gæti allt eins verið 11. þingmaður Norðausturkjördæmis, og er það í eðli mínu. En, frú forseti, hér talar glæsilegur fulltrúi bænda á Grund í Grýtubakkahreppi af viti. Það er ánægjulegt að heyra samhljóminn í þessari umræðu en ég er nokkuð hugsi vegna þess að mér finnst við Íslendingar hafa flotið sofandi að feigðarósi í þessum efnum í vissum skilningi. Aðrar þjóðir haga sér ekki með þessum hætti. Ég get nefnt aðrar Evrópuþjóðir. Frakkar myndu ekki missa frá sér vínekrurnar í Champagne-héraði eða Þjóðverjar í Rínardalnum. Ég get nefnt líka glæsilegt dæmi um viðspyrnu eins og Piemonte-héraðið á Ítalíu sem er fyrir norðan Toscana í hlíðarfæti Alpanna. Þar er landbúnaðurinn á heimsminjaskrá UNESCO. Það er verið að varðveita smábýli vínbænda svo stórir auðjöfrar taki þau ekki yfir. Það er einfaldlega komið á heimsminjaskrá UNESCO til að varðveita smábændamenninguna og viðhalda framleiðslu hjá þessum einkareknu vínframleiðendum þannig að það eru fjöldamörg dæmi í heimi hér, bara í okkar álfu sem sýna að menn standa vörð um jarðnæði og, eins og hv. þingmaður segir, jarðnýtingu.
Mig langar í mínu fyrra andsvari að spyrja hv. þingmann: Hvers vegna í ósköpunum höfum við Íslendingar ekki sett nógu sterka löggjöf um landnýtingu á síðustu árum og áratugum? Við erum að setja löggjöf um allt milli himins og jarðar en þegar kemur að sjálfri landnýtingu á Íslandi virðist okkur vera nokk sama sem löggjafa. Það finnst mér harla undravert.