157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

73. mál
[13:29]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Það er nú oft þannig þegar stórt er spurt þá er stundum fátt um svör. Það vill þannig til í þessu tilfelli að það á við um þann sem hér stendur. Ég get svo sem, jú, velt því fyrir mér en ég get ekki fest hendur á hvers vegna við erum ekki komin lengra. Ef ég á að draga ályktanir af því hvers vegna ég tel að svo sé komið fyrir okkur þá held ég að hluturinn sem snýr að því þegar við ætlum að setja ramma um eignir fólks, þá getur það haft og hefur áhrif á t.d. söluverðmæti ákveðinnar eignar. Um slíkt er klárlega að ræða þegar kemur að þessu. Ég held að það sé alveg ljóst. Þar af leiðandi, ef farin er þessi leið, að við setjum á skyldu varðandi það hvernig land skuli nýtt, hvernig sjáum við það fyrir okkur? Ætlum við að nýta það til þess að framleiða korn eða til sauðfjárbeitar og ætlum við t.d. þá að skipuleggja þetta svæði fyrir sumarhúsabyggð? Við sjáum það alveg í hendi okkar að landið sem við ætlum að hafa undir sumarhúsabyggð er margfalt, margfalt verðmætara heldur en landið við hliðina sem við ætlum að nýta til kornræktar eða bara til beitar fyrir sauðkindina eða nautgripi. Það er held ég stærsti þátturinn í því að við höfum ekki heildstæða löggjöf um það hvernig við ættum að nýta land. En skipulagsvaldið er aftur á móti sveitarfélaganna og skipulagsvaldið og sveitarfélögin mörg hver (Forseti hringir.) hafa flokkað hvar þau vilja sjá hvernig land er nýtt (Forseti hringir.) en við eigum langt í land. Við þurfum mikla vinnu og mikið samtal um það hvernig við komumst á þann stað sem ég og hv. þingmaður erum sammála um að fara á.