jarðakaup erlendra aðila.
Virðulegur forseti. Það hefur verið áhugavert að hlýða á ræður þingmanna hér og hv. framsögumanns þessa máls um jarðakaup erlendra aðila, sem koma upp hér í umræðunni með yfirveguðum hætti að þessu sinni. Það er ekki alltaf þannig vegna þess að mönnum hættir til að að trekkja upp mikla geðshræringu í tengslum við kaup erlendra manna á fasteignum hér á landi.
Mig langaði að leggja nokkur orð í belg í ljósi þessarar umræðu, benda á það að nokkuð reglulega hefur farið fram vinna í Stjórnarráðinu við að skoða þessa þætti, einkum þegar upp hefur komið svona krafa eða ótti manna um að það væri einhvern veginn vegið að fullveldinu eða möguleikum Íslendinga til að kaupa jarðir. Þá hefur verið farið í vinnu við að skoða þær reglur sem að þessu lúta. Þá á ég við fasteignir í víðri merkingu.
Það hafa verið gerðar nokkrar breytingar á lögum og reglum sem lúta að fasteignakaupum erlendra aðila. Sú sem stendur hér í ræðustól átti þátt í vinnuhópi upp úr 2013, ég man nú ekki alveg árið, líklega 2014–2015. Þá var nefnd sem skilaði nú heilmikilli vinnu eftir mikla skoðun á þessu máli, þar sem sérstaklega var skoðað hvernig hægt væri, ef það væri vilji fyrir því, að takmarka kaup erlendra aðila á fasteignum. Í framhaldinu urðu einhverjar breytingar á reglum, sem kannski aðallega og einkum lutu að fasteignum, þ.e. byggingum í þéttbýli og öðru. Þá fór heilmikil vinna í þetta og mikil skoðun á þessum möguleikum, kannski líka að einhverju leyti með það að leiðarljósi að velta því fyrir sér hver vandinn væri sérstaklega. Hann er kannski ekki sá sami í dag og hann var þá. Ég átta mig ekki á því hvort menn greina einhvern nýjan vanda hér kominn upp. Þó finnst mér ágætt að í þessari tillögu til þingsályktunar er nefnt eitthvað sem ég held að hafi ekki hvarflað að nokkrum manni á þeim tíma, sem er útflutningur á jarðefnum. Allt í einu virðast þau kannski vera orðin einhver auðlind. Á því áttuðu menn sig ekki endilega hér áður fyrr. Þetta voru ekki álitnar auðlindir af því að þegar menn hafa verið að ræða um auðlindir og þá eignarhald erlendra aðila á náttúruauðlindum á íslensku landi, á íslenskum jörðum, þá hafa menn einmitt yfirleitt verið að líta til orkuauðlindanna okkar eða vatnsréttinda. Dæmin sýna sem betur fer að menn sjá verðmæti í fleiri og fleiri hlutum þegar fram líða stundir. Auðvitað er sjálfsagt að það eigi sér stað einhver umræða um það sérstaklega.
Engu að síður vildi ég draga fram í þessari ræðu minni það sem mér hefur þótt vanta í umræðuna, sem er almennt eignarhald ríkisins á jörðum. Ríkið á núna held ég, þegar þessum þjóðlendumálum er nú að ljúka, um 40% af landinu sem eru þjóðlendur og ríkið á um þessar mundir, held ég, hátt í 500 jarðir, sem ég held að ég geti fullyrt að séu langmestu jarðir landsins. Þetta er allt í eigu ríkisins og ríkið á líka forkaupsrétt að náttúruminjum og jörðum sem hafa eitthvert gildi með vísan til náttúruminja. Þá má nefna það líka að sveitarfélögin hafa öll í hendi sér eignarhald á stærstum hluta þess landsvæðis sem er innan viðkomandi sveitarfélags. Þannig að ég vil bara að það komi fram í þessari umræðu að allt tal um að það séu útlendingar eða jafnvel íslenskir einkaaðilar sem séu mjög umsvifamiklir eigendur jarða, er ekki rétt, það er ekki þannig. Stærstur hluti landsvæðis á Íslandi er í höndum opinberra aðila og einkum ríkisins.
Það má líka nefna það að síðastliðin 100 ár hefur ríkið við sölu jarða, þá sjaldan þegar ríkið hefur selt frá sér jarðir eða afsalað sér eignarhaldi á jörðum, haldið eftir eignarhaldi á auðlindum á slíkum jörðum ef þannig ber undir. Það má líka geta þess að framsal á orkuauðlindum frá jörðum er ekki heimilt.
Ég held að það hefði kannski verið ráð í þessari umfjöllun um tillögu til þingsályktunar að hafa aðeins breiðari sýn eða varpa ljósi á það vandamál sem mönnum finnst einhvern veginn blasa við. Mér finnst svolítið skorta á það í þessu og kannski geri ég helst athugasemdir við það að tillagan lúti að því sérstaklega að það verði farið í einhverja vinnu með það að markmiði að takmarka jarðakaup erlendra aðila. Ég held að það kunni alveg að vera tilefni til þess, a.m.k. að menn hafi uppi einhverja vinnu almennt og skoði þessi jarðamál, en það þarf þá að afmarka vandann sérstaklega. Mér hefur svona á hliðarlínunni helst virst að menn fetti fingur út í jarðakaup erlendra aðila sem hafa það eingöngu að markmiði, hefur mér virst, að komast yfir laxveiðiár. Menn hafa kannski ekki haft það í huga þegar sett voru lög um laxveiðiár eða veiðifélög á sínum tíma þar sem kveðið var á um að það mætti ekki skilja að vatnsréttindi eða réttindi veiðifélaga frá jörðum. Menn hafa þá kannski ekki haft það í huga að áhuginn væri fyrst og fremst á laxveiðiánum en ekki jörðunum. Í dag standa menn frammi fyrir því að hafi þeir áhuga á að eignast laxveiðiár þá þurfi þeir að kaupa heilu jarðirnar í þeim tilgangi.
Ef það er eitthvað sérstakt vandamál sem menn standa frammi fyrir þá mætti kannski mæta þeim vanda með einhverjum öðrum hætti en að takmarka sérstaklega kaup erlendra aðila á fasteignum hér á landi eða jarðakaupum, þ.e. fasteignakaupum í víðum skilningi.
Ég vil í þessari atrennu í þessu máli bara fagna því að málið sé komið fram. Frá mínum bæjardyrum séð finnst mér kannski þingsályktunartillagan allt of þröngt afmörkuð að því leyti að mönnum hættir til að einblína svo mikið á þessi kaup erlendra aðila. Það er líka orðið svolítið flöktandi hugtak. Hvað er erlendur aðili? Hér eru íslensk félög sem eru í rauninni að kaupa upp jarðir líka þar sem hluthafar geta verið ýmsir, m.a. erlendir aðilar. Þegar menn telja sig hafa einhverja lausn á þessu með því kannski að banna eitthvað eða takmarka eitthvað þá þurfa menn að hugsa til enda, hvort það sé raunverulega hægt að framfylgja slíkum takmörkunum. Það var einmitt það sem litið var til í nefnd þáverandi innviðaráðherra áranna 2014–2015, hvort og að hvaða marki hægt væri að framfylgja slíkum takmörkunum.
Fyrst og fremst, virðulegur forseti, tel ég að menn þurfi að afmarka aðeins betur vandann sem við blasir. Frá mínum bæjardyrum séð finnst mér einboðið, og hvet Alþingi til þess að leggjast á árar með mér í því, að ríkið losi um eignarhald sitt á jörðum og komi þeim jörðum, sérstaklega jörðum sem eru vel fallnar til ræktunar, í hendur á þeim sem hafa burði og þekkingu og áhuga á því að rækta land. Það má ekki gleyma því að það þarf að vera einhver til staðar sem hefur áhuga á því að eignast þetta land og áhuga á því að rækta það. Það þýðir ekki að menn standi hér við Austurvöll og tali um að jarðir þurfi að vera í ræktun og að það þurfi að skylda það fólk sem á jarðirnar til að búa á þeim og rækta þær. Við ætlum vonandi ekki að hneppa fólk í einhverja ánauð hér á Íslandi á þessum tíma. Ég tel mikil tækifæri felast í því, bæði fyrir bændur og fyrir landsbyggðina og líka höfuðborgarbúa sem hafa áhuga á að tengjast kannski landsbyggðinni og náttúrunni betur, að ríkið myndi frekar fara kerfisbundið í að afsala sér eignarhaldi á þessum mörgu jörðum og mikla landsvæði sem ríkið hefur undir höndum núna.