157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

73. mál
[13:48]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Úr því að hv. þingmaður, framsögumaður málsins, spyr mig um takmarkanir á eignarhaldi í sjávarútvegi þá gæti ég svo sem kastað fram spurningu, ég er ekki að óska eftir svari við henni, en þjóna slíkar takmarkanir einhverjum tilgangi? Hvaða tilgangi þjóna takmarkanir á eignarhaldi í sjávarútvegi? Þær hafa fyrst og fremst komið í veg fyrir hagræðingu í sjávarútvegi og ég er ekki viss um að ef menn færu að skoða það ofan í kjölinn að það myndi standast nokkra skoðun að halda því fram að þær þjóni einhverju öðru en bara því að koma ró á umræðuna um sjávarútveginn sem hefur auðvitað verið mjög farsakennd og umvafin almennri geðshræringu. Þannig að ég er ekki viss um að menn ættu í landbúnaði eða þegar kemur að eignarhaldi á jörðum að horfa til sjávarútvegsins í þessum efnum. (Forseti hringir.) Menn þurfa þá að færa einhver frekari rök fyrir því hverju menn ætla að ná fram með slíkum takmörkunum.