jarðakaup erlendra aðila.
Virðulegur forseti. Varðandi þjóðaröryggið og þessar takmarkanir á eignarhaldi á jörðum með vísan til þjóðaröryggis sé ég ekki í fljótu bragði og hefur ekki fundist umræðan hér rökstyðja að það þurfi að takmarka eignarhald á jörðum með tilliti til þjóðaröryggis. Ég bara bendi á að þegar kemur að eignarhaldi á jörðum eins og öðrum rekstri þá er auðvitað einhver skurðpunktur hagræðingar. Menn þurfa að geta hagrætt og það verður að leyfa stærðarhagkvæmnina, þannig að takmarkanir á eignarhaldi, eins og hv. framsögumaður er að nefna hér, hefur mér virst vera svona innlegg í umræðuna til að slá á einhverjar áhyggjur sem ég kalla eftir að menn leggi frekar fram. Ég kemst bara ekki til að svara seinni spurningunni sem var af þessum meiði líka.