jarðakaup erlendra aðila.
Virðulegur forseti. Ég get alveg séð slíkt fyrir mér. Ég get alveg séð fyrir mér alls kyns sérákvæði þegar kemur að eignarhaldi á jörðum. Ég held að þetta sé alveg einnar messu virði, þessi hugmynd sem hv. þingmaður hefur viðrað hér í umræðunni, þótt ég geti ekki tjáð mig um stærðarmörkin eða eitthvað svoleiðis. Menn verða alltaf að hafa í huga óvæntar og hugsanlega neikvæðar afleiðingar sem gætu komið af einhverju slíku án þess að ég geti velt þeim upp hér og nú. Hugmyndin finnst mér alveg skoðunarverð. Það eina sem ég legg áherslu á að menn þurfi að hafa í forgrunni eru þá einhver sjónarmið, að stoðum sé að minnsta kosti rennt undir hvers kyns sérmeðferð sem slíka. Ég held að það væri alveg hægt að tefla slíku fram en það yrði að vera að undangenginni umræðu.