jarðakaup erlendra aðila.
Virðulegur forseti. Það er einmitt hætt við því að umræða um þetta fari út um víðan völl. Ef menn telja að þeir séu búnir að taka einhverja umræðu um að takmarka eignarhald erlendra aðila á jörðum eða fasteignum er kannski bara farið í næsta. Hvað með fyrirtækin sem hafa tekjur af jörðum og fasteignum? Auðvitað getum við gengið svona lengi áfram. Auðvitað eigum við að fagna áhuga erlendra aðila sem innlendra, aðallega fjársterkra aðila, á því að virkja og þá er ég að tala um í víðri merkingu þess orðs að virkja og nýta auðlindir okkar. Íslenska löggjöfin er þannig úr garði gerð að ríkið, eins og ég rakti í ræðu minni, og sveitarfélög og opinberir aðilar — löggjöfin er með öll tögl og hagldir á náttúruauðlindum á Íslandi. Ef allt um þryti þá er meira að segja, eins og menn hafa horft fram á, hægt að taka jarðir og eignir eignarnámi ef mönnum býður svo við eða ef þannig vandamál koma upp. Ég hef ekki áhyggjur af þessu heldur skil ég umræðuna miklu frekar þannig að menn vilji hafa einhvern fyrirsjáanleika (Forseti hringir.) og þetta sé í einhverri formfestu og menn sjái kannski eitthvað aðeins inn í framtíðina af því að svo er þetta allt saman á flökti. Hvað eru auðlindir? Þær geta verið aðrar í dag en á morgun.