jarðakaup erlendra aðila.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar innlegg í umræðuna sem er þörf og tímabær. Við höfum rætt hér um víðan völl um þennan málaflokk og komið víða við. Ég fagna innleggi hvað varðar ríkisjarðir. Ég hef oft og tíðum verið hugsi yfir því hvað ríkisvaldið hefur nánast með einbeittum vilja eignast margar jarðir hringinn í kringum landið. Ég held að ég fari rétt með að þær séu í kringum 500 nú um stundir, auðvitað margar kirkjugarðar en einnig margar mjög nýtilegar jarðir sem eru e.t.v. í lítilli nýtingu og litlum rekstri. Hv. þingmaður svaraði því hér áðan að í mörgum tilvikum þyrfti að koma þessum jörðum í notkun á ný. Mig langar að vita hvaða hvata hv. þingmaður sér fyrir sér í þeim efnum vegna þess að þetta er brýnt. Það er ekkert sjálfgefið að ríkið eigi 500 jarðir á Íslandi.