157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

73. mál
[14:04]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr um hvata og ég geri ráð fyrir að hann sé þá að vísa til hvata ríkisins. Það þarf að hvetja ríkið til þess að koma jörðunum út og það er bara pólitísk ákvörðun sem ég held að ríkisstjórnin ætti að setja sér og taka ákvörðun um að hrinda í framkvæmd. Ég held að þessi þingsályktunartillaga sem slík gæti ýtt við þessu máli.

Ég hins vegar, eins og ég nefndi í ræðu minni, hefði einmitt talið fara betur á því að ávarpa þetta frekar með það að markmiði að hvetja ríkisstjórnina frekar í þessum málum almennt með heildarmyndina að leiðarljósi. Af því hér hafa þjóðlendurnar líka verið nefndar þá var markmiðið með þjóðlendumálunum öllum auðvitað ekki að ríkið ætlaði sér að eiga jarðirnar, þótt þjóðlendur heiti þá er ekki þar með sagt að ríkið ætli sér að eiga þær. Málaferlin voru til þess að koma eignarhaldinu á hreint, koma skikki á það. Í framhaldinu væri þá hægt að afsala eignarhaldinu í hendur annarra.