157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

73. mál
[14:06]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta eru auðvitað lykilspurningar í þessu máli. Þá er því til að svara að það eru heilmiklar skorður. Það getur ekki komið hingað maður frá Asíu og keypt upp miklar jarðir. Það eru takmarkanir á því. Það eru alls konar takmarkanir, m.a. gagnvart erlendum ríkjum, þau geta t.d. ekki keypt hér jörð og ég held að við séum öll sammála um að við viljum ekki að erlend ríki séu eigendur að einhverjum jörðum á Íslandi. Það væri fráleitt að mínu mati og ég tala nú ekki um ef það væru einhver ráðstjórnarríki eða einræðisríki, af því að slíkt hefur verið í umræðunni í gegnum árin, mögulegar tilraunir þeirra til að eignast hér land. Þannig að það eru takmarkanir. Svo höfum við þennan EES-samning og samstarfið þar. Það hefur verið skoðað. Íslenskum stjórnvöldum er þröngur stakkur sniðinn þegar kemur að einhverjum hömlum þar. Að mínu mati held ég að það sé ekki útilokað. Það er alls ekki þannig að menn geti ekki sett hömlur þrátt fyrir EES-samninginn. Standi vilji til þess þá eiga menn auðvitað bara að gera það. (Forseti hringir.) Ég held að það þurfi að vera einhverjar hömlur á þessu út frá ýmsum sjónarmiðum sem er of langt að rekja hér í stuttu andsvari.