157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

almenn hegningarlög.

82. mál
[14:43]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir að leggja fram þetta áhugaverða frumvarp og gefa okkur færi á því að tala um tjáningarfrelsi og mörk mannréttindaákvæða stjórnarskrár hér í þingsal, sem mér finnst ekkert of mikið gert af. Ég ætla ekki að nálgast þessa umræðu með einhverju handapati eða mála einhverja ljóta mynd á vegginn vegna þess að þetta er í lok dags bara mál sem við eigum að ræða og nálgast af einhverju svona æðruleysi gagnvart því að það er ekkert sjálfgefið í þessum heimi, hvorki að njóta mannréttinda né að sæta ábyrgð.

Ég ætla bara rétt aðeins að koma inn í andsvar í tengslum við þetta vegna þess að ég var nú búin að skrá mig í ræðu seinna í umræðunni en vildi nota tækifærið og spyrja hv. þingmann, út af því að við erum auðvitað með matskennda löggjöf — refsilöggjöfin er, eins og gefur að skilja, matskennd upp að vissu marki, alveg eins og ákvæði stjórnarskrárinnar. Ég velti því bara fyrir mér, og það er svona að einhverju leyti komið inn á það í frumvarpinu, hvernig við gerum refsirammann skýrari með því að auka á þá matskenndu þætti sem hv. þingmaður nálgast með þessu frumvarpi, þ.e. að skilyrða hatursorðræðu með þeim hætti að hún sé til þess fallin að kynda undir eða hvetja til. Ef hv. þingmaður gæti bara í örfáum orðum komið inn á það hvað felist í auknum skýrleika með þessari skilyrðingu þá væri ég frekar þakklát vegna þess að við sjáum ekki sambærileg skilyrði t.d. í meiðyrðalöggjöfinni, þ.e. þeim ákvæðum hegningarlaga sem lúta að meiðyrðaumræðu, og væri ég því afar þakklát.