almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir flutninginn á þessu um margt áhugaverða frumvarpi um hatursorðræðu. Þótt ekki sé með beinum hætti talað um hatursorðræðu í þeim lögum sem hér eru undir þá er vísað til þeirra í lögum um fjölmiðla og þar kveðið á um að svokallaður hatursáróður sé ólöglegur.
Án þess að lagaumhverfið hafi endilega tekið mjög mið af umræðunni úti í samfélaginu á síðari árum þá er mjög mikið rætt um hatursorðræðu og hatursáróður. Þessi hugtök hafa sannarlega sótt í sig veðrið á allra síðasta áratug og svo kannski á allra síðustu örfáu árum. Nú er orðið tiltölulega algengt í almennri stjórnmálaumræðu að ákveðin umræða í ákveðnum málaflokkum sé iðulega afgreidd sem hatursorðræða, þótt auðvitað gerist ekki allir sekir um að afgreiða eðlilega umræðu sem hatursorðræðu. Þess eru þó fjölmörg dæmi og það sem maður hefur áhyggjur af í því sambandi er m.a. ef maður lítur út í heim eða í kringum sig á Íslandi og sér hvernig umræðan getur þróast yfir í að það myndist mjög sterk og að hluta til stofnanaleg, lagaleg og stjórnmálaleg þrúgandi nálgun gagnvart sjónarmiðum sem mörgum kann að mislíka en eiga þó eftir allt að vera lögmæt, þ.e. í þessum afskaplega viðkvæmu málaflokkum okkar tíma sem alltaf vekja þessi miklu viðbrögð, hvort sem það eru útlendingamál eða hvers konar kynferðismál eða mál sem varða kyntjáningu fólks. Í svona málaflokkum hefur þetta hugtak orðið mjög fyrirferðarmikið á allra síðustu árum þótt segja megi að öll 21. öldin í Evrópu, innan Evrópusambandsins, merki rólega þróun í þá átt að aukin áhersla sé á haturstjáningu.
Talað er um það í greinargerð þessa frumvarps að það var árið 2007 sem ráðherranefnd Evrópusambandsins samþykkti ákveðin tilmæli um hatursáróður. Fyrst er talað um kynþátta-, útlendinga- og gyðingahatur og jafnvel talað um svokallað umburðarleysi sem birtist í þjóðernishyggju eða þjóðhverfum sjónarmiðum, mismunun og fjandskap gagnvart minnihlutahópum, farandverkafólki og fólki af erlendum uppruna. Mínar áhyggjur á þessu sviði hafa ævinlega tengst því að í eðlilegri umræðu — talandi um einmitt þjóðhverf sjónarmið eða annað, eins og að menn séu að huga að innflytjendastefnu í sínu landi — hafi ákveðin pólitísk öfl hagsmuni af því að öll sú umræða verði afgreidd sem glæpsamlegt hatur. Það skyldi þá aldrei verða hér á Íslandi þótt maður hafi greint tilhneigingar í þessa átt innan ákveðinna stjórnmálaafla á vinstri vængnum. Að sönnu er þetta reyndar ekki bundið við vinstri væng heldur líka hægri væng víða um heim. Ég hef t.d. gert athugasemdir við að öll gagnrýni á Ísraelsher sé afgreidd sem gyðingahatur, sem er í raun og veru brella af sama meiði hef ég sagt. Þetta er því sannarlega ekki bundið við annan væng stjórnmálanna þótt vissulega hafi maður einkum séð þetta á vinstri væng. Það er ákveðið gæluverkefni vinstri manna að vera með hatursorðræðuna á takteinum við hvert færi og tilefni og oft að ósekju. Við gætum rakið dæmi víða að úr heiminum, hvort sem það er í Þýskalandi þar sem saksóknarar gorta sig af því í viðtölum við alþjóðlega fjölmiðla hve mjög og hart þeir sækja að þeim sem tjá sig á netinu um margvísleg samfélagsmál. Gott ef það var ekki t.d. 64 ára maður kominn á eftirlaun, Stephan Nyhof, sem fékk heimsókn frá lögreglu eftir að hafa tíst um að þáverandi fjármálaráðherra Græningja, Robert Habeck, væri það sem heitir á þýsku „Schwachkopf“, með leyfi forseta, þ.e. einhvers konar fáviti. Í Þýskalandi hefur maður séð þess merki að það sem var upphaflega einhver umræða um hatursorðræðu hefur færst í skilyrðum yfir á mun almennari stjórnmálaumræðu. Nú er svo komið um löndin í Evrópusambandinu að fyrirsagnir í tímaritum á borð við The Atlantic í Bandaríkjunum tala um, með leyfi forseta, þótt íslenska sé þingmálið: „Europe has a free speach problem,“ sem er fyrirsögn úr The Atlantic, þ.e. Evrópa á í ákveðnum vandræðum í tengslum við málfrelsið.
Hver sem vill sjá þetta getur séð það og þegar ég segi að The Atlantic skrifi þetta þá er The Atlantic nú síst róttækur hægri miðill með málfrelsi á heilanum. Það er bara frjálslyndur framfarasinnaður miðill, meira og minna á vinstri demókratavæng stjórnmálanna í Bandaríkjunum, sem fellst á að Evrópa sé komin í ógöngur á þessu sviði. Í Bandaríkjunum mætti líka rekja sig eftir þessum sama þræði á undanförnum árum, hvort sem er í því sem virtist á köflum vera afar vafasamar hreyfingar á vegum t.d. stjórnvalda Demókrataflokksins í tíð Joe Biden, þar sem stjórnvöld virtust í ákveðnum tilvikum ganga ansi langt í a.m.k. styðja við samtök sem svo fóru til einkafyrirtækja, þ.e. samfélagsmiðla, og gerðu kröfur um ritskoðun á tilteknu efni. Ekki var það efni allt raunverulega ólögmætt eða saknæmt heldur einfaldlega pólitískt efni þannig að þar virtist vera raunveruleg ritskoðun í gangi sem sumir segja að brjóti í bága við bandarísku stjórnarskrána. Þetta hefur gerst á allra síðustu árum þar. Auðvitað er það bara gömul saga og ný að við þurfum að fylgjast mjög vel með því hvernig þessari stefnu er háttað hjá samfélagsmiðlunum en jafnvel í Evrópusambandinu og á Íslandi eru sannarlega raddir um að það þurfi að koma einhvers konar böndum á umræðuna á samfélagsmiðlum. Ég hef bent á að þar er iðulega notað þetta hugtak hatursorðræða en það er þó aldrei skilgreint. Það eru auðvitað gerðar tilraunir til að skilgreina þetta og hér í þessum sal erum við núna að ræða frumvarp þar sem við erum að tala um að þrengja skilgreininguna, sem er sannarlega skref í rétta átt, að þrengja skilgreininguna á þessari 233 gr. a í hegningarlögum sem hljóðar þá eftir þessa breytingu í heild sinni svona:
„Hver sem opinberlega rógber, smánar, ógnar eða hæðist að manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum …“ Svo bætist við viðbótin í þessu frumvarpi: „ … enda sé háttsemin til þess fallin að hvetja til eða kynda undir hatri, ofbeldi eða mismunun.“
Nú hef ég á undanförnum árum fylgst með málum í íslensku samfélagi þar sem þessi ákvæði eru undir. Mín niðurstaða hefur almennt verið sú að vilji menn á annað borð hafa ákvæði í þessa veru í okkar löggjöf þá sé einmitt mjög mikilvægt að gera eins og verið er að gera í þessu frumvarpi, að njörva niður hver ásetningur og tilgangur háttseminnar sé og að hann sé þá glæpsamlegur og hann sé í raun og veru hið glæpsamlega við málið frekar en ummælin sjálf, vegna þess að séu þau raunverulega til þess fallin að hvetja til eða kynda undir ofbeldi eða mismunun er sannarlega hægt að fara að ræða hvort hlutirnir eigi að vera löglegir eða ólöglegir og hvort þeir varði við fangelsi eða sektum.
Ég tel að í vinnu frumvarpsins ættum við að fara í frekari skoðun á þeirri hugmynd sem hér er í breytingunni um að hvetja til eða kynda undir hatri. Við erum alltaf, sannarlega í víðum skilningi, í hegningarlögum og í dómsmálum almennt, að tala um matskennd lög. Það er gömul saga og ný og verður alltaf. Að kynda undir hatri eða hvetja til haturs með ummælum — allir sem hafa einhverja tilfinningu fyrir orðanna hljóðan vita að þar erum við komin á mjög breitt svið með mjög víðtæka skírskotun til rosalega mikils af umræðu. Að hvetja til haturs eða kynda undir hatri er eitthvað sem flestir geta sagt að mjög mörg ummæli sem falla í daganna og tímans rás kunni að falla undir; að kynda undir hatri eða hvetja til haturs. Þótt ég viti vel að dómarar og við, löggjafinn, getum líka borið okkur að því að njörva þetta betur niður og útskýra nákvæmlega við hvað er átt o.s.frv., þá held ég að í frekari vinnu frumvarpsins væri þess virði að skoða þennan þátt, hvort það sé eðlilegt að hafa það að kynda undir hatri eða hvetja til haturs, vegna þess að ég óttast að þetta sé hreinlega of matskennt. Það er það sem maður óttast, að þetta sé of matskennt, samanber það sem ég hef líka gert athugasemdir við opinberlega um að það sé talað um það sem hatursorðræðu þegar talað er um það á netinu að karlmenn geti ekki fætt börn. Þar er fólk sem er þeirrar skoðunar að karlmenn geti fætt börn búið að komast að þeirri niðurstöðu að fullyrðing um að svo sé ekki feli á einhvern hátt í sér hatur frekar en að fólk sé bara að lýsa sínum hlutlæga veruleika án þess að hata nokkurn mann. Þar er einhver annar búinn að ákveða að einhver ákveðin ummæli séu hatur þegar ásetningurinn er á engan hátt hatur hjá viðkomandi. Það er alla vega erfitt að gefa sér hver ásetningurinn er. Þess vegna tala ég um hatursorðræðu og þessar áhyggjur sem við höfum lýst af misnotkun hugtaksins, að það spretti upp hugtök eins og jafnvel óbein hatursorðræða og það er þá einfaldlega t.d. upplýsingaóreiða á mati t.d. aktívista á sviði þessara kynvitundarmála sem ég var að tala um, að þar er óbein hatursorðræða í raun og veru þá umræða sem stangast á við þeirra sýn og þeirra kenningar. Er það hatur og er það glæpsamlegt? Það er einfaldlega allt önnur spurning. Eða hafa menn einhvern málefnalegan og hugmyndafræðilegan eða jafnvel í einhverjum skilningi trúarlegan ágreining um grundvallarskilning á veruleikanum? Er það hatur? Þess vegna er mikilvægt, eins og við erum að gera í þessu frumvarpi eða hv. þingmaður Sigríður Á. Andersen leggur til með þessu frumvarpi, að kveða skýrt á um það ef menn vilja hafa þetta inni, að þetta sé til þess fallið að hvetja. Að mínu mati ætti að vera það að hvetja til ofbeldis eða mismununar vegna þess að þar ertu raunverulega að gera eitthvað sem er hvort sem er ólöglegt og þá er sjálfsagt að hafa það inni.
Ég tel að það sé á þessum síðustu og verstu tímum afar mikilvægt að þingheimur standi mjög þéttan vörð um tjáningarfrelsi á Íslandi. Við höfum séð að jafnvel í svonefndum frjálslyndum lýðræðissamfélögum hafa þessi réttindi, sem ég tel að við fæðumst með og enginn eigi rétt á að svipta okkur, þessi réttindi til að tjá okkar hugsun á meðan það einmitt felur ekki í sér einhvern glæpsamlegan verknað eins og að hvetja til ofbeldis eða hótana eða annað eins, þá höfum við þennan rétt og að honum er sótt. Það er ekki bara í þessum frjálslyndu lýðræðisríkjum sem ég tala um en það eru kannski þau sem maður hefur mestar áhyggjur af vegna þess að þar heggur sá er hlífa skyldi. Ef menn eru talsmenn skýrrar og sterkrar og jafnvel íþyngjandi hatursorðræðulöggjafar held ég að þeir ættu að vera sammála þeirri hugmynd að það ætti að vera skýrt kveðið á um að þetta sé gert í ákveðnum tilgangi, þetta sé til þess fallið að hvetja til ofbeldis eða mismununar. Það er vegna þess að leið til þess, ef svo má segja, að missa salinn gagnvart svona hugmynd löggjafans er að hafa þetta of matskennt og þar með bjóða hættunni heim og mikilli tortryggni heim í þessari umræðu. — Þá hef ég lokið máli mínu.
(Forseti (EÁs): Forseti vill minna hv. þingmann á að þingmálið er íslenska, eins og honum er kunnugt um, og ber að virða þau lög.)