almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún fór út um víðan völl, sem er ágætt. Hún nefndi þjóðaröryggi og utanaðkomandi ógnir og öll þekkjum við upplýsingaóreiðuna. Ég get tekið undir margt af því sem hún segir. Það er alls konar upplýsingaóreiða, menn slengja einhverju fram á miðlunum og menn misnota miðlana, ekki bara einstaklinga heldur stjórnvöld líka. Við þekkjum það úr heimsfaraldrinum Covid þar sem það voru helst stjórnvöld sem stóðu fyrir mestu upplýsingaóreiðunni; bæði stjórnvöld hér á landi og um víðan völl og nú hefur verið flett ofan af því að þau hafi keypt og bannað þessum stóru samfélagsmiðlum að birta ákveðna umræðu nema undir eftirliti stjórnvalda. Það er hættulegt og óæskilegt.
En mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að þetta tiltekna ákvæði í hegningarlögum, 233. gr. a, sé leiðin til að takast á við þetta? Sérstaklega í ljósi bakgrunns þessa ákvæðis sem kemur inn vegna alþjóðlegra skuldbindinga og samstöðu manna um allan heim til að berjast gegn kynþáttamisrétti og mannréttindabrotum á minnihlutahópum. Telur hún að það eigi að nota þetta ákvæði til að verjast allri þessari utanaðkomandi ógn og upplýsingaóreiðunni sem hún nefnir? Ég hef einmitt áhyggjur af því, í ljósi þess sem hv. þingmaður segir, að menn beiti fyrir sig upplýsingaóreiðu og segi að það þurfi að stöðva umræðu með vísan til upplýsingaóreiðu og þá grípi menn til þessa ákvæðis með heimfærslu refsingar eða refsiheimilda til 233. gr. a, til þess að stöðva einhverja upplýsingaóreiðu. Það er engin upplýsingaóreiða þótt einhverjir vitleysingar hringi inn í einhverja útvarpsstöð og „deleri“ um menn og málefni. Það er engin upplýsingaóreiða, bara óforskömmugheit og kurteisisleysi. Telur hv. þingmaður það til velfarnaðar fallið ef þessari grein verður beitt í vaxandi mæli með vísan til upplýsingaóreiðu?