157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

almenn hegningarlög.

82. mál
[15:26]
Horfa

Flm. (Sigríður Á. Andersen) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður veltir fyrir sér í ræðu sinni hvernig þetta frumvarp myndi leiða til aukins skýrleika ákvæðisins. Ég ætla ekkert að fullyrða um að það geri það. Hins vegar held ég að ég geti fullyrt að það sé til þess fallið að gera það, einkum og sér í lagi í ljósi þess hvernig ákvæðin hafa verið hér áður fyrr og hvernig þau hafa þróast og hvernig dómafordæmin hafa þróast. Líka með vísan til dóma Mannréttindadómstólsins þar sem menn hafa lagt mat á þetta með friðhelgi einkalífsins og tjáningarfrelsi líka, sem mönnum er kannski ofar í huga víða erlendis, að vernda það ákvæði. Ég hef þessa tvo dóma líka fyrir mér. Ég spyr hv. þingmann sem ég veit að hefur lesið dómana, a.m.k. reifunina sem er í þessari greinargerð, hvernig hún meti það, hvort henni komi það ekki á óvart eða hvort hún telji það heppilegt að það séu tveir dómar sem komust að gagnstæðri niðurstöðu. Það var sýknað annars vegar og sakfelling hins vegar. Það kemur fram í sakfellingarmálinu að Hæstiréttur vísaði til þess að viðkomandi:

„[…] hafi látið ummælin falla í viðamikilli almennri umræðu, þar sem orðræðan hefði ekki alltaf einkennst af yfirvegun eða hófsemd, hefðu orð hans verið komin langan veg frá upphaflegu tilefni umræðunnar og verið í senn alvarleg, gróflega meiðandi og fordómafull.“

Svo segir Hæstiréttur: „Til slíkra tjáningarhátta hefði honum verið alls óþarft að grípa í því skyni að koma skoðunum sínum á framfæri.“

Þetta er mat Hæstaréttar á gæfu og gjörvileika þessa einstaklings. Hvað veit Hæstiréttur um það hvernig hann getur komist að orði? Í hinu málinu hins vegar segir að tjáningin hafi ekki falið í sér „slíka óbeit, andúð, fyrirlitningu eða fordæmingu að telja megi hana til hatursorðræðu“, bara út af því að menn notuðu sitthvort orðið yfir sömu óforskömmugheitin eða dónaskapinn í garð tiltekins fólks. (Forseti hringir.) Hvað finnst hv. þingmanni um það að við sitjum uppi með tvo dóma sem ganga hvor í sína áttina?