157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

samningsfrelsi og heimildir ríkissáttasemjara.

[15:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir góða spurningu. Ég get staðfest að ég deili þeim áhyggjum sem fram komu í máli hennar. Það er ljóst að flugumferðarstjórar eru mikil lykilstétt í landi sem byggir eins mikið af sinni afkomu á stöðugum samgöngum við nágrannalöndin. Það er líka rétt sem fram kom í máli hv. þingmanns að við virðum samningsfrelsi og verkfallsrétt en eins og einnig kom fram í máli hennar þá verður alltaf að skoða hagsmuni samfélagsins einnig þegar hugað er að því hvort takmarka eigi slíkan rétt. Ég fagna því auðvitað mjög að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafi lagt fram uppbyggilegar hugmyndir um þróun á hlutverki ríkissáttasemjara. Ég tel að það sé allrar skoðunar vert að gera þær breytingar. Það heyrir þó að sjálfsögðu ekki undir mitt ráðuneyti heldur félagsmálaráðuneytið að gera breytingar á því og ég tel því réttara að hv. þingmaður taki það sérstaklega upp við hæstv. félagsmálaráðherra þegar tækifæri gefst til þess. En það er áreiðanlega þannig að huga þarf að þeirri stöðu og sérstaklega að því við hvaða skilyrði og hvort rétt sé að ríkissáttasemjari hafi heimild til að takmarka getu til verkfalla eða koma sérstaklega að boðun eða áframhaldi þeirra.

Þetta er málefni sem ríkisstjórnin fylgist mjög grannt með. Þingheimi er ljóst að það hefur komið upp á í sögunni að gripið sé til aðgerða og þá er það gert með stuttum fyrirvara þegar staðan er metin þannig að ekki sé annað fært en að grípa inn í.