kostnaður vegna falls flugfélagsins Play.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp og vildi gjarnan eiga orðaskipti við hæstv. fjármálaráðherra og fá skýrari svör frá ríkisstjórninni um mjög misvísandi upplýsingar er varða kostnað ríkisins vegna falls Play. Fjármálaráðherra sagði, held ég, í þessum sal, í þessum lið, að það væri trúlega um nokkur hundruð milljónir að ræða. Nokkrum dögum síðar kom hæstv. innviðaráðherra og taldi að kostnaðurinn væri 1,5 milljarðar. Síðan fréttist af minnisblaði fjármálaráðuneytisins þar sem talað var um 5 milljarða. Það er talsverður munur á þessum upplýsingum sem gerast yfir nokkra daga en ríkisstjórnin hefur einhvern veginn ekki komið hér fram og upplýst þingið um hvert raunverulegt tjón ríkisins er af falli Play. Ef það eru 5 milljarðar er þá stöðugleikareglan í uppnámi? Mig minnir að ríkisstjórnin hafi skilið um 500 milljónir eftir. En ef þetta er vegna þess að kostnaðurinn falli á Isavia, sem er utan við A-hlutann og hefur þar af leiðandi ekki með stöðugleikaregluna að gera, hver er þá kostnaður Isavia vegna þessa? Og núna þegar verkfall flugumferðarstjóra kemur og það mun án efa verða tekjufall fyrir Isavia, fyrir utan auðvitað ferðaþjónustuna og þjóðarbúið í heild sinni, er þá orðin hætta á því að lánalínur Isavia, sem er í miklum framkvæmdum, séu í uppnámi? Er hætta á innköllun á lánalínum eða er kostnaðurinn sem fjármálaráðuneytið er að tilkynna hér með, að hér þurfi á að halda auknu eigin fé úr ríkissjóði til Isavia, til þess að Isavia geti haldið áfram sínum dampi? Ég held að það sé mikilvægt fyrir þingið að fá heiðarlegri og rétt svör frá ríkisstjórninni og að það skeiki ekki nokkur hundruð milljónum upp í 5 milljarða. Hver er rétta talan, ef einhver veit hana?