157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

kostnaður vegna falls flugfélagsins Play.

[15:14]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir spurninguna. Nú vill þannig til að það eru tíu hundruð milljóna í milljarði þannig að þegar talað er um mælikvarða af þessari stærðargráðu þá er kannski ekki óeðlilegt að vísað sé til mælikvarðanna beggja. Um er ekki að ræða milljarða, hugsanlega einhver hundruð milljóna umfram milljarð. En hér er vandamálið: Þetta getum við ekki vitað fyrir fram og þetta byggist allt á spám. Spárnar fara eftir því hvort t.d. þeir sem misstu vinnuna hjá Play finni strax aftur vinnu eða ekki, hvort þeir verði atvinnulausir um lengri eða skemmri tíma, þetta vitum við ekki, hvort önnur flugfélög muni stíga inn í það gat sem Play skildi eftir sig umsvifalaust með framboði flugferða þannig að áhrifin á ferðaþjónustuna verði minni eða meiri. Þetta vitum við ekki. Það er gott að vita að þingheimur telji að fjármálaráðuneytið geti spáð um þessa hluti en ég ætla að vera alveg hreinskilinn og segja: Það er mjög erfitt. Þess vegna er alltaf munur á þessum spám. 1,5 milljarðar — kannski, en það er þá miðað við einhverjar ákveðnar forsendur um hversu langan tíma það tekur fólk að finna vinnu, hvort áhrif verða á ferðaþjónustuna eða ekki, og ég bið hv. þingmann að virða það að hvorki fjármálaráðuneytið né aðrir vita hvað framtíðin ber í skauti sér.

Varðandi stöðu Isavia var vandlega gætt að því að þessu sinni, hugsanlega vegna þess hvernig fór við fall WOW, þegar fór að horfa í að illa gengi í rekstri Play, að skuldir félagsins við Isavia væru í lágmarki. Tjónið þar nemur kannski um 200 millj. kr.