kostnaður vegna falls flugfélagsins Play.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir síðari spurninguna. Hér þarf að gera greinarmun á annars vegar kostnaði ríkisins af falli Play og hins vegar þjóðhagslegum áhrifum falls Play. Ég hygg að vísað sé til síðari tölunnar þar, með 5 milljarða. Alla vega kannast ég ekki við að það sé mat á kostnaði ríkissjóðs. Varðandi möguleikann á markaðsstarfi þá er það þannig að aldrei nokkurn tímann í sögunni hafa eins mörg flugfélög nýtt sér Keflavíkurflugvöll og akkúrat í dag. Markaðsstarf er í sjálfu sér ágætt en það er þá fyrst og fremst gert til að auka eftirspurn eftir Íslandi sem áfangastað. Ísland hefur hingað til alltaf treyst á að hinn frjálsi markaður annist það að tryggja framboð á þjónustu. Það þarf auðvitað að skoða hvort og hvenær þá og með hvaða hætti eigi að ráðast í kynningarátak en varðandi það að tryggja framboð treystum við hér eftir sem hingað til á hinn frjálsa markað.