vörugjald á bifreiðar.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir svarið. Hún hefur greinilega ekki verið viðstödd landsþing Viðreisnar vegna þess að ég kannast alls ekki við þær ályktanir sem hún er þar að vitna til. Ályktanir og samþykktir Viðreisnar gera ekki ráð fyrir slíku banni svo mér sé kunnugt. (Gripið fram í.)Þessi breyting var boðuð í fjárlagafrumvarpi og um hana hefur meira að segja verið tekin umræða hér. Ég hef lýst því yfir og mun að sjálfsögðu ekki bregðast þeirri skyldu minni að vera viðstaddur og taka umræðu við þingmenn. Mér er það bæði ljúft og skylt. Ég hef haft af því mikið gagn í gegnum tíðina og get glatt nýkosinn þingflokksformann Miðflokksins með því að það mun ég gera hér eftir sem hingað til. Síðan langar mig bara til að segja að hér er ekki um kerfisbreytingu að ræða. Kerfið er raunar nánast óbreytt. Þetta eru breytingar á hallatölum og stuðlum en í eðli sínu hefur þetta fyrirkomulag, þ.e. að vörugjöld af bifreiðum hafi verið háð kolefnislosun þeirra, verið við lýði um langt skeið.