157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

meðferðarúrræði fyrir börn og unglinga.

[15:28]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir þessa fyrirspurn. Það fyrsta sem ég vil taka fram um þetta: Hjarta mitt er hjá þeim foreldrum sem eiga börn í miklum vanda og ég hef hitt sum þeirra, heyrt rödd þeirra, kvíða, sorgina og skil áhyggjurnar. Það er átakanlegt að heyra sögu foreldra sem berjast fyrir börn sín en barátta þeirra er líka hvetjandi að mörgu leyti. Við verðum fyrst að viðurkenna að þessi mál hafa ekki verið í lagi í langan tíma. Okkur ber einfaldlega að bregðast við. Því fyrr sem gripið er inn í því, meiri líkur eru á að unga fólkið nái sér á strik. Við erum nú að endurbyggja á Stuðlum en á undan erum við að vonast til að núna, bara í lok þessa árs, verði hægt að taka Gunnarsholt til starfa. Við erum jafnvel að reyna að flýta fyrir því hvort hægt sé að taka Gunnarsholt tímabundið í gagnið. Þar verða úrræði fyrir átta drengi. Þetta er svipað og Bjargey fyrir norðan þar sem eru stúlkur. Síðan erum við búin að opna í Skálatúni í Mosfellsbæ. Þar er rými fyrir fimm börn. Þegar Gunnarsholt er komið í gagnið getum við virkilega farið að taka Stuðla og séð til þess að algjörlega sé gengið frá þeim þannig að þar verði 13 öryggisrými. Þá verður líka hægt að aðskilja aldur og kyn. Eins og ég segi er ég að gera allt sem ég get og velta öllum þúfum við til að sjá til þess að við getum tekið á þessum vanda. Þetta er vandi sem er búinn að vera í langan tíma. Sumir hafa talað um frá 2017. Því miður er staðan sú að við erum ekki komin lengra en þetta í dag en við erum þó að sjá fyrir endann á þessari uppbyggingu sem er búin að vera. Bruninn, asbest, mygla; allt þetta höfum við þurft að eiga við og núna er það komið frá og við erum bara á lokasprettinum.