157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

meðferðarúrræði fyrir börn og unglinga.

[15:30]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Hann hins vegar svaraði ekki spurningunni minni. Ég var að spyrja hvort hæstv. ráðherra væri tilbúinn til að endurskoða afstöðu sína til þess að veita tímabundinn stuðning við meðferðarúrræði erlendis ef þau uppfylla þá stuðla og þær kröfur sem við gerum til þeirra, ef við finnum slík úrræði erlendis. Það væri kærkomið að fá svar við því.

Ég veit að þetta er ekkert einfalt. Þetta er alveg flókið og það hafa margar breytur áhrif á stöðuna í dag en mig langar samt að spyrja hæstv. ráðherra varðandi meðferðarheimili fyrir ungmenni. Núna hefur lengi legið fyrir að það ætti að byggja nýtt meðferðarúrræði, annaðhvort í Garðabæ eða Mosfellsbæ. Slík heimili eru auðvitað afar mikilvæg viðbót við núverandi þjónustu og gætu létt verulega á álagi á kerfinu. Við vitum líka að það tekur tíma að hanna slíkt, það tekur tíma að byggja slíkt og fjármagna og sá tími er afar dýrmætur og því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hefur verið tekin endanleg ákvörðun um staðsetningu nýs meðferðarheimilis fyrir ungmenni, og hvort (Forseti hringir.) það verði þá í Mosfellsbæ eða Garðabæ? Ég ítreka líka fyrirspurnina mína varðandi meðferðarúrræði erlendis.