sjúkraskrár.
Virðulegur forseti. Eins og fram kom í framsögu hv. framsögumanns nefndarálits hér fyrr þá stend ég að þessu nefndaráliti með öðrum nefndarmönnum en þó með fyrirvara og mig langaði bara örstutt að gera grein fyrir honum. Það er fyrirvari um einmitt þennan flugáhafnaþátt sem hv. formaður velferðarnefndar, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, nefndi í sinni ræðu hér fyrr. Hún nefndi sem rétt er að Persónuvernd hafi málið til skoðunar en að læknar leggi á það áherslu að þeir komist í þessi gögn sem eru auðvitað nauðsynleg til að meta hæfni flugáhafna. Ég tek undir með hv. formanni velferðarnefndar að það sé rétt að skoða þetta og jafnvel þó að ráðuneytið hafi ekki fallist á þær tillögur að breytingum á frumvarpinu sem bárust með umsögn að þessu leyti þá held ég að það sé þess virði og að það sé æskilegt að þingið taki afstöðu til þessa ágreiningsatriðis sem liggur fyrir en láti það ekki í hendur Persónuverndar að úrskurða í málinu. Ef það liggur fyrir ágreiningur og það vill svo vel til að málið er fyrir Alþingi þá ber auðvitað þinginu að skera úr um og ákveða í hvaða farveg menn vilja hafa þessa hluti þannig að við erum í ágætum færum til þess. Ég heyrði að hv. formaður velferðarnefndar er mér sammála um þetta og sagði í sinni ræðu að hún væri, eins og hún orðaði það, á því að fá málið aftur í nefnd. Í þessu ljósi vil ég bara óska eftir því, virðulegur forseti, að málið gangi til hv. velferðarnefndar aftur að lokinni 2. umræðu.