157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:01]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er hægt að taka undir og ég get verið sammála ýmsu sem kemur fram í hans máli og í þessari þingsályktunartillögu þannig lagað. En mig vantaði eiginlega svar við því sem ég var að reyna að bera hérna upp. Þingmanninum er tíðrætt um að styrkja höfuðborgarsvæðið en hér er sérstaklega verið að taka Reykjavík út, þannig að ég var að óska eftir viðhorfi hans til þess. Nú hefur höfuðborgin gríðarlega yfirburði yfir önnur sveitarfélög og önnur svæði hér á landi. Ég myndi kannski vilja fá það skýrar fram hvort þingmanninum finnist það rétt að búa til sérstaka stefnu þar sem höfuðborgin ein er styrkt þótt við viljum líta á höfuðborgarsvæðið allt sem eina heild. Eins og ég kom inn á áðan snýst þetta um Reykjavík þar sem fjárhagslegir yfirburðir hvað varðar tekjur af fasteignagjöldum af ýmsum stjórnsýslustofnunum — af því þetta hefur nú oft komið upp í umræðunni, þá veitir þetta eina atriði höfuðborginni margra milljarða forskot eins og staðan er núna. En mér heyrðist kannski þingmaðurinn, hann leiðréttir mig þá, vera að ýja að því að það mætti endurskoða þetta, fara að færa stofnanir út á land, kannski til Eyjafjarðar, ég veit það ekki.