157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:18]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hvernig gerum við þetta? Ég þakka hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni fyrir hans fyrri spurningu. Ég held að við gerum þetta í fyrsta lagi með öflugu atvinnulífi, að við sköpum þann jarðveg að hér geti fyrirtæki sprottið upp með tiltölulega einföldum hætti og séu ekki þannig að þau kafni í regluverki, í biðsölum hins opinbera í ár og jafnvel áratugi eftir að koma verkefnum á koppinn. Ég held að það sé líka hluti af því að blanda þessu af því að við viljum fá alls kyns störf inn á svæðin, hvar sem það er. Nú erum við t.d. að tala um Akureyri. Ég sé engin vandræði við það að flytja eitt eða tvö ráðuneyti norður á Akureyri, ég sé bara engin vandamál við það. Við horfum hér upp á stórfyrirtæki, risastór fyrirtæki úti í heimi, þar sem starfa jafnvel í einhverjum deildum viðkomandi fyrirtækja fleiri starfsmenn en allir starfsmenn ráðuneytanna og jafnvel allir starfsmenn Reykjavíkurborgar ef út í það er farið. Og þeir starfsmenn eru ekki í höfuðstöðvunum. Höfuðstöðvarnar eru á öðrum stað og það er ekkert mál. Ef risafyrirtæki, stórfyrirtæki úti um allan heim, geta stýrt starfsemi sinni á heimsvísu með alls kyns útibúum og deildum, af hverju í ósköpunum ætti það að vera flókið? Það er ekkert flókið að flytja eitt eða tvö ráðuneyti norður á Akureyri, það er bara hér sem það er svo.