borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Frú forseti. Mig langaði bara að koma hér örstutt upp og setja niður nokkra hæla, í það minnsta einn, sem ég hef reyndar gert á fyrri stigum í umræðunni. Við erum sem sagt að ræða tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Þessi borgarstefna er, ég held að ég fari rétt með, ein af 44 aðgerðum í gildandi byggðaáætlun en markmiðið er að stærstu þéttbýlissvæðin verði efld og samkeppnishæfni þeirra og hlutverk í byggðaþróun landsins styrkt. Í lýsingunni á aðgerðinni er m.a. lögð áhersla á að skilgreina eigi hlutverk Reykjavíkur sem höfuðborgar og uppbyggingu Akureyrar sem svæðisborgar. Í umsögnum sem við fengum sendar til umhverfis- og samgöngunefndar þá voru fjölmargar umsagnir sem komu inn á að það vantaði öryggishlutverk Reykjavíkur gagnvart landsbyggð. Langflest sveitarfélögin voru mjög jákvæð gagnvart borgarstefnunni en hafa engu að síður áhyggjur af því að þeir landsbyggðarhlutar sem ekki eru nefndir í þessari stefnu verði mögulega út undan.
Hv. þm. Jens Garðar Helgason fór í sjálfu sér ágætlega yfir það hérna áðan sem mig langaði að nefna núna sérstaklega af þessu tilefni, en það er Reykjavíkurflugvöllur. Ég sakna þess, eins og alla vega nokkur landsbyggðasamtök, að það eru engar skyldur inni í þessu plaggi lagðar á Reykjavíkurflugvöll hvað varðar þjónustu við landsbyggðina. Ég held að það sé mjög mikilvægt í útfærslunni sem mun fara fram í kjölfar þess að borgarstefnan verður samþykkt að skilgreina ábyrgð höfuðborgarinnar, hún þarf að standa undir ábyrgð varðandi þjónustu við ólíka landshluta og það er ekki heldur hægt að horfa fram hjá nauðsynlegri uppbyggingu grunninnviða á landsbyggðinni þessu tengdu. Sérstaklega vil ég vísa örstutt í umsögn frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi. Þar segir, með leyfi forseta:
„Það vekur furðu, svo ekki sé fastar að orði kveðið, að ekkert er fjallað um innanlandsflug um Reykjavíkurflugvöll í tillögunni. Höfundar hennar hljóta að átta sig á því að íbúar landsbyggðarinnar, þar á meðal Austurlands og Vestfjarða, þurfa að sækja fjölbreytta þjónustu til Reykjavíkur. Að mati SSA þarf þetta að koma skýrt fram í stefnumótun um höfuðborgina.“
Ég vildi koma hingað upp og hvetja okkur öll við útfærslu á þessari borgarstefnu að ábyrgð höfuðborgarinnar Reykjavíkur gagnvart landsbyggð verði tryggð með þeim hætti sem landsbyggðin þarf á að halda. Að öðru leyti held ég að ég þurfi ekkert að vera með frekari málalengingar varðandi þetta. Reykjavíkurflugvöllur hefur gríðarlega miklu hlutverki að gegna gagnvart landsbyggð og gagnvart sjúkrahúsi fyrir landsbyggðarfólk.