157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:38]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Hér ræðum við nefndarálit um tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Sem þingmaður Norðausturkjördæmis og íbúi í Grýtubakkahreppi ætla ég að fagna því að þetta mál sé komið fram og komið hér til 2. umræðu og ætla að stikla aðeins á stóru í tengslum við þá byggðastefnu sem við höfum rekið hér síðastliðin 150 ár. Það er mjög áhugavert að renna í þingsályktunartillögunni í gegnum tölulegar staðreyndir, sagan er í sjálfu sér tekin saman, þær breytingar sem hafa orðið á ekkert svo löngum tíma. Við getum nú sagt í háði en samt er alvara í því að sú byggðastefna sem við höfum rekið hér í 150 ár hefur verið á einn veg, þ.e. að flytja í sjálfu sér eiginlega allt á höfuðborgarsvæðið. Vissulega varð breyting við iðnbyltinguna og annað þegar menn fóru að mynda þéttbýli vítt og breitt um landið og hættu í sjálfu sér að stunda sjálfsþurftarbúskap í dreifbýli en það er mjög áhugavert að í lok 19. aldar bjuggu 85% þjóðarinnar í dreifbýli og aðeins 4% bjuggu á sama tíma í þéttbýlinu sem þá var að myndast. Það sem er áhugavert er að árið 2022 voru það 4% af þjóðinni sem bjuggu í dreifbýli. Þessi gríðarlega breyting gerist nú á frekar stuttum tíma í sögulegu samhengi. Því er, held ég, mjög mikilvægt að við horfum jákvæðum augum á þá stefnu sem hér er til umfjöllunar varðandi það að styrkja Akureyri sem svæðisborg þó að við vitum alveg að það er ansi teygjanlegt hugtak hvað við teljum vera borg en ég skil alveg inntakið hvað það varðar sem snýr að því hlutverki sem Akureyri samkvæmt þessu á að þjóna og er að þjóna í dag.

Við sjáum sömuleiðis að í sveitarfélögunum nálægt Akureyri, þ.e. Hörgársveit, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðsstrandarhreppi, eru að byggjast upp ákveðin þéttbýli mjög nálægt Akureyri. Nú ætla ég ekki að fara að tala um sameiningu sveitarfélaga enda svo sem finnst mér það bara vera sveitarfélaganna sjálfra að ákveða það en ætti ekki að gera það með boðvaldi að ofan eins og hefur nú verið í umræðu hér því miður undanfarin ár hvað það varðar. En að Akureyri sé öflugur þjónustubær, öflugur bær þar sem háskóli er, þar sem heilbrigðisþjónusta er, þar sem öll þjónusta er til staðar, er gríðarlega mikilvægt fyrir allar þær byggðir sem þarna eru í kring. Við sjáum það mjög vel með Vaðlaheiðargöngum t.d. hvaða áhrif bættar samgöngur hafa upp á að bæta þjónustu við íbúa sem búa austan Vaðlaheiðar.

Ég fagna því að þessi þingsályktunartillaga sé komin fram en í því ljósi sem við erum búin að vera að eiga við hér undanfarið kjörtímabil sem nú er gengið verðum við sömuleiðis að horfa til þess að mér finnst það skjóta skökku við á sama tíma og við erum að fara af stað með og fagna hér borgarstefnu að við erum búin að vera í boði þessarar ríkisstjórnar að skattleggja landsbyggðina með hinum ýmsu gjöldum. Þar getum við t.d. komið inn á veiðigjöldin sem eru ekkert annað en skattlagning hvað það varðar og veikir landsbyggðina. Það á ekki að vera markmið okkar. Við þurfum að búa til starfsskilyrði úti á landi til þess t.d. að Akureyri geti sinnt sínu hlutverki á þann mikilvæga hátt sem hér er getið í þessari þingsályktunartillögu. Við þurfum að horfa til þess því að þetta snýst alltaf um það að skapa skilyrði fyrir íbúa þessa lands, hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli, til þess að það sé ákjósanlegt fyrir einstaklinginn að setjast að, hvort sem er í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, austur á landi, vestur á fjörðum, fyrir norðan, um allt land. Það er lykilatriði og ég myndi telja að það væri ágætur upptaktur í framhaldi af þessari borgarstefnu sem hér er til umræðu að það verði farið af almennilegum krafti í að reyna að snúa þessari þróun við sem okkur hefur því miður ekki tekist enn sem komið er. Það eru engin teikn um það að við séum að snúa þeirri þróun við að fólk hætti að sogast til höfuðborgarsvæðisins, það er nú bara einu sinni þannig, vegna þess að við erum ekki að bjóða einstaklingum úti á landi upp á sömu tækifæri og eru til staðar hér á höfuðborgarsvæðinu.

Það hefur verið hér til umræðu að nóg höfum við rætt, hvort sem það var í þeirri ríkisstjórn sem ég tilheyrði hér á síðasta kjörtímabili eða þá í þessari, um að flytja opinber störf út á land en einhvern veginn — jú, við höfum lagt af stað en það hefur ekki fest almennilega í sessi. Hver ástæðan er veit ég ekki en ég held að það sé eitt af lykilatriðunum til að efla byggð á landinu vegna þess að það getur ekki verið, frú forseti, neinni þjóð æskilegt að vera með það búsetumynstur sem við höfum hér á landi. Ef við horfum til nágrannalanda okkar, t.d. eins og er í Skandinavíu, þá búa um 20–30% á Kaupmannahafnarsvæðinu og Óslóarsvæðinu og sömuleiðis nálægt Helsinki en hérna erum við með rétt um 80%. Við eigum stórt og gjöfult land og það hlýtur að vera kappsmál okkar allra að fólk búi sem víðast á þessu fagra landi okkar og skapi verðmæti, það er grundvallaratriði. Það er grundvallaratriði að fólki sé gert það kleift að skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið, hvort sem það er hér á höfuðborgarsvæðinu eða norður á Akureyri eða á Vestfjörðum eða Austfjörðum eða á Vesturlandi eða Suðurlandi. Það er lykilatriði. Þannig getum við treyst byggð og þannig eflum við hana.

Ég vona svo sannarlega að þetta verði ein af þeim stefnum sem við reynum að fylgja eftir og ég veit það að sveitungar mínir og nágrannar á Akureyri eru mjög áfram um að halda þessari stefnu til streitu og byggja upp Akureyri því að við vitum alveg hvers megnug Akureyri er fyrir sín nærsamfélög og þá byggist það sömuleiðis á því að við séum með góðar samgöngur til að Akureyri sem borg geti uppfyllt þær skyldur og þær væntingar sem við höfum.

Frú forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ég vil bara fagna því að við séum komin á þennan stað varðandi þá borgarstefnu sem hér er til umræðu en ég ítreka að það þarf meira til og við verðum að horfa til þess hvernig nágrannar okkar eru að reyna að stýra því eða hafa hvata til þess að fólk setjist að úti á landi. Sú þróun sem hér á sér stað hér á landi á eftir að bíta okkur allhraustlega í hælana ef við bregðumst ekki við.