borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Ég vil nú kannski fyrst og fremst koma hér upp til að þakka fyrir þessa umræðu sem var í meginatriðum málefnaleg en dregur kannski aðeins fram það sem við hefur verið að etja þegar ekki er endilega rætt um svæðisborgina á Akureyri heldur Reykjavík og höfuðborgarsvæðið, nefnilega það sem hér var rifjað upp, að kannski alla síðustu öld hefur hið opinbera og oft og tíðum þessi salur talað um þróun Reykjavíkur og hraða þróunar í Reykjavík. Þá hefur verið talað um það sem vandamál. Það væri stórt vandamál varðandi Ísland og hvernig landið væri að þróast að Reykjavík væri að stækka of hratt eða eflast of mikið. Það var ekki bara í þessum sal sem þetta var rætt á þennan veg heldur eins merkilegt og það nú er; í einu merkilegasta aðalskipulagi sem hefur verið gert fyrir Reykjavík, í tíð Geirs Hallgrímssonar um 1966, var sett fram mikil framtíðarsýn um stórhuga þróun Reykjavíkur og hann lét þess sérstaklega getið í inngangi að aðalskipulaginu að afsaka bæri þann mikla vöxt sem hafði orðið í borginni eftir seinna stríð og hvernig einhvern veginn margir höfðu komið og bæst við hóp borgarbúa í leit að betra lífi, betri lífskjörum. Þetta er hluti af þessari þéttbýlismyndun sem hér var nefnd.
Ég hef stundum nefnt það sem við ræðum býsna sjaldan, að ein af helstu ástæðum þess að Ísland þróaðist frá því í lok 19. aldar að geta ekki brauðfætt landsmenn þannig að mjög margir og býsna stór hluti þjóðarinnar flutti til Vesturheims, frá því að vera eitt af fátækari ríkjum Evrópu í eitt af þeim auðugustu, var að nokkuð stórum hluta því að þakka að þéttbýlismyndun var hraðari á Íslandi heldur en ég þekki nokkur önnur dæmi um. Það þýðir ekki að því hafi ekki fylgt bæði sár og erfiðleikar í dreifðari byggðum. Þetta einkenndist bæði af því að fólk flutti inn á þéttbýli á sínu svæði en ekki síst á suðvesturhornið. Vegna þessarar sögu sem einkenndi mjög pólitíska umræðu í 100 ár á Íslandi mátti varla nefna það sem jákvæðan hlut að efla höfuðborgarsvæðið. Sú löngu tímabæra tillaga að marka og móta borgarstefnu kom fram sem bein tillaga hér á landi fyrir líklega um 15 árum í tengslum við verkefnið Ísland 2020 í kjölfar hrunsins. Þótt hún hafi ratað inn í fleiri en einn og fleiri en tvo stjórnarsáttmála ríkisstjórna á þeim tíma sem við tók komst verkefnið einhvern veginn aldrei almennilega af stað fyrr en sú hugmynd kviknaði í innviðaráðuneytinu, undir þáverandi forystu Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins, að tengja þetta við hugmyndir sem höfðu verið í deiglunni fyrir norðan um að móta sýn á Akureyri sem borgarsvæði og svæðisborg. Þá var eins og það hafi skapast meiri sátt um þetta. Eins og mér finnst að mestu leyti umræðan hér í dag endurspegla þetta og vera tímanna tákn, þá er núna mjög breið samstaða um þetta meðal landsmanna og þingheims. Það fundum við þegar við heyrðum í umsagnaraðilum frá öllu landinu, að það er samstaða um að það sé gott fyrir Ísland að Reykjavík eflist og að það sé gott fyrir Ísland að Akureyri eflist. Fólk hefur upp til hópa áttað sig á því að stóri slagurinn í byggðamálum er í raun að búa til lífsgæðasamfélag með ólíka valkosti fyrir ólíkt fólk um land allt, m.a. það að geta boðið upp á borgarlíf og alþjóðlegan borgarbrag og þau lífsgæði sem tengjast því að búa í borgum. Ef Ísland hefði ekki upp á slíka kosti að bjóða myndi Ísland tapa býsna hratt í samkeppni um yngri kynslóðir og komandi kynslóðir. Raunar mætti færa rök fyrir því að eldri kynslóðin, þegar hún fer af landi brott á veturna eða annað slíkt, sé ekki síst að sækja í borgarumhverfi erlendis og hlýrra loftslag.
Þessi borgarstefna fjallar ekki um hlýrra loftslag enda er það dálítið umhendis, en hún fjallar um það að Alþingi undirstriki að það er samkeppnishæfnismál fyrir Ísland allt að Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og svæðið í kringum Reykjavík frá Hvítá til Hvítár eflist, og að þess vegna þurfi að hugsa um það sem eina samhangandi heild, eitt atvinnusvæði, eitt íbúasvæði og eins og hér hefur verið nefnt, eitt samgöngusvæði. Það hefur verið gert á höfuðborgarsvæðinu í gegnum svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesin hafa verið með sitt svæðisskipulag og núna Suðurland, en það hefur ekki verið gert í heildstæðu ljósi með Vesturlandi eða með svæðinu sem slíku. Einstaka sveitarfélög hafa unnið mjög náið saman eins og dæmi eru um; Reykjavík, Akranes og Borgarnes hafa unnið gríðarlega vel saman. Það er á grundvelli svæðishugsunar, bæði innan Faxaflóahafna og um Orkuveitu Reykjavíkur. Ríkið, hið opinbera, hefur hins vegar ekki haft heildarsýn á þetta svæði sem eitt heildarsvæði. Í raun kemur skilgreining á Reykjavík sem borgarsvæði frá OECD sem bendir á það að Hvítár-Hvítársvæðið myndi teljast eitt samhangandi borgarsvæði samkvæmt öllum alþjóðlegum skilgreiningum vegna þess að fólkið á svæðinu er farið að haga sér í samræmi við það.
Þetta vildi ég bara nefna sem óbein viðbrögð við umræðunni hér. Það hafa alveg verið haldnar nógu margar ræður í þessum sal á síðustu öld um að vandinn sé sá að hér hafi orðið til fyrirtæki, fjárfesting og að hér í borginni hafi verið byggt húsnæði. Sumum hefði þótt það skrýtið fyrir jafnvel stuttu síðan að tala um Akureyri sem borg vegna þess að borg var svona meira skammaryrði í opinberri umræðu. Það er hins vegar tímanna tákn að hugtakið borg er það ekki núna. Það er tengt við ýmis eftirsóknarverð gæði og þess vegna var mjög áhugavert í gestakomum og í umræðu og í aðdraganda þess að þessi þingsályktun varð til að eldmóðurinn á bak við þessa tillögu hér kemur ekkert síður að norðan. Ábendingarnar t.d. frá Austurlandi og víðar að, sem sumir nefndu, voru m.a. þess efnis hvort ekki væri hægt að sjá fyrir sér borgarmyndun með þeirri viðspyrnu sem það myndi þýða á Austurlandi. Kannski ber framtíðin í skauti sér að við hættum að tala um borgarþróun og borgarmyndun sem neikvæðan hlut heldur einmitt viðspyrnu fyrir svæði sem vill bjóða nýjum kynslóðum þau lífsgæði sem mjög margir sækjast eftir.
Stóru tíðindin í þessu eru þau að tillagan talar um að það sé eftirsóknarvert fyrir Ísland að borgarsvæði Reykjavíkur eflist, að svæðisborgin Akureyri eflist og að það verði unnar þróunaráætlanir á grundvelli þessarar framtíðarsýnar þar sem tengdar verða saman áætlanir ríkisins og hins opinbera til að allir gangi í takt við að þróa þessi svæði, bæði sveitarfélögin á svæðinu, íbúarnir, atvinnulífið og aðrir. Ég vil bara benda á þetta og ítreka þakkir fyrir umræðuna. Um þetta allt saman mætti hafa mjög langt mál. Ég bendi á tillöguna sjálfa og greinargerð með henni. Ég bendi líka á niðurstöður starfshópsins sem fór fyrir því að leggja grunn að þessu í upphafi og síðan ágætar umsagnir og nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar frá því í vor sem í raun er vísað til í mjög stuttu og knöppu nefndaráliti núna vegna þess að umræðan hefur náð að kjarna sig. Það er breið samstaða um þetta og það eru mikil og ánægjuleg tímamót að Alþingi taki þetta til afgreiðslu.