borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir sína yfirferð og aðeins yfirferð á sögunni, þó að ég hafi kannski ekki upplifað alla söguna eins en það er nú annað mál, af því að ég er á því og flestir eru sammála um að það er bara jákvætt að höfuðborgin sem við erum öll stolt af byggist upp og sé öflug. Ég held að það sé mikilvægt fyrir byggðirnar að eiga öfluga höfuðborg en það er líka mikilvægt fyrir höfuðborgina að eiga öfluga landsbyggð, hvort sem það er dreifbýli eða þéttbýli í landsbyggðinni. Þéttbýlið var kannski helst á milli Hvítánna og hvað þá hér í Reykjavík áður fyrr en nú er bara þéttbýlið orðið ansi þétt og sterkt hringinn í kringum landið, þannig að það eru, eins og ég kom inn á í mínu máli, fleiri svæðisborgir heldur en bara Akureyri þó að Akureyri hafi afmarkaðri landshluta, sé aðeins fjær Reykjavík en Akranes, Reykjanesbær og Árborg sem dæmi. Allar hafa þær mikilvægu hlutverki að gegna sem burðarsveitarfélög á sínu svæði upp á að veita þjónustu og annað slíkt. Því langaði mig að koma hér upp og spyrja hv. þingmann hvort svona svæðisborgir, hvað þá höfuðborgin sjálf, beri ekki vissar skyldur og hvort það sé ekki eðlileg umræða að hér séu þá einhverjar grunnskyldur ef höfuðborgin ætlar að vera hin raunverulega höfuðborg. Hvaða skyldur felast í því að vera höfuðborg?