borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Stutta svarið er jú, því fylgja ýmsar skyldur og forystuhlutverk sem borgin ræktar að mjög mörgu leyti, ekki bara í opinberri þjónustu heldur líka í atvinnulífi, í háskólastarfsemi, heilbrigðisþjónustu, í því að vera gluggi út í heim eins og í menningarmálum og í raun að líta á það sem hlutverk sitt og átta sig á mikilvægi þess fyrir Ísland að hafa lifandi og öfluga og skemmtilega borg sem er kraftmikil og full af tækifærum af öllum toga. Það er yfirhöfuð mikið samkeppnishæfnismál. Borgin þarf líka að vera opin, taka á móti nýjum íbúum, ekki fyrst og fremst af landsbyggðinni heldur líka utan úr heimi. Við myndum ekki vera að byggja upp hátæknifyrirtækin í Vatnsmýri eða mjög mikið af öflugum ferðaþjónustufyrirtækjum og þannig mætti áfram telja ef það væru ekki að koma sérfræðingar víða að til að vinna undir oft íslenskri forystu að því að þróa þá hluti. Borgir einkennast oft af umburðarlyndi, víðsýni, auðvitað mjög miklum fjölbreytileika og það skiptir þess vegna máli að geta búið fólki þannig umhverfi. Ég er sannfærður um að það er einn af styrkleikum Reykjavíkur og getur orðið styrkleiki, ef það er það ekki nú þegar, Akureyrar.