borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mig langar að spyrja hv. þm. hvað honum finnist um þessa grunninnviði og grunnþarfir af því að nú er stærsta út- og innflutningshöfn landsins hér, sem skiptir gríðarlega miklu máli, hvort sem það er fyrir neytendur eða atvinnulífið í heild, að höfnin sé aðgengileg og greið og þá þurfa stofnbrautirnar að vera í lagi. Svo ef við erum að tala um að höfuðborgarstefnan eigi að ná yfir höfuðborgarsvæðið og hv. þingmaður nefndi Hvítársvæðið, þá eru greiðar samgöngur liður í byggðastefnu og í því að það sé hægt að stækka vinnusóknarsvæði og horfa á svæðin sem eina heild. Þá hljóta þessar stofnbrautir að vera svolítið grunnur að því að þær fái þá umferðarrýmd í borgarlandinu, þannig að niðurstaða í skýrslunni sem innviðaráðuneytið gerði með Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborg 2018 nái fram að ganga og einnig til að hafa aðgengi að heilbrigðisþjónustunni, að stjórnsýslunni, að þessari öflugu menningu, borg og öðru slíku sem er hér. Flugvöllurinn gildir líka fyrir t.d. Akureyri, sem er svæðisborgin, og það þurfa að vera mikil og góð samskipti, þau treysta hvað mest á flugið vegna fjarlægða og annað slíkt og það er heilbrigðisþjónusta og annað. Það hljóta því að vera einhverjar skyldur hjá höfuðborginni gagnvart þessum grunninnviðum til að hafa aðgengi að hinum grunninnviðunum sem er heilbrigðisþjónusta, stjórnsýsla og annað slíkt.