157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:06]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, skyldurnar og sýnin ná sannarlega til innviðanna og það er mikil áhersla á það í ályktuninni um borgarstefnu að móta sýn á samgönguinnviðina sem þingmaðurinn nefnir fyrir allt þetta borgarsvæði frá Hvítá til Hvítár. Hvað þýðir það? Það þýðir m.a. að það þarf að taka það inn í myndina að flugvöllurinn er gríðarlega mikilvægur. Alþjóðaflugið í Keflavík er hornsteinn samkeppnishæfs atvinnulífs á Íslandi, þess geira sem er í útflutningi og alls konar viðskiptum. Þess vegna held ég að þegar horft er fram í tímann varðandi tengingar við hann, þá þurfi að horfast í augu við það að nú er um þriðjungur af allri umferð sem kemur um Reykjanesbrautina á hverjum degi sem tengist ferðamennsku, bílaleigubílum og þéttir umferðina mjög í Hafnarfirði og alveg inn í miðborg. Við erum með alveg afleitar almenningssamgöngur t.d. við Keflavík. Á að hugsa stórt? Á að hugsa lest? Alla vega stóreflingu almenningssamgangna suður eftir, alveg klárlega. Ég held að það sé mjög mikil samstaða um það á öllu þessu svæði. Við þurfum líka að horfast í augu við að gamla stofnbrautaskipulagið sem var gert og lagður grunnur að upp úr 1960 er orðið yfirfullt á ýmsum tímum af bílum. Við sjáum það þegar við erum t.d. að rýna mestu tafagatnamótin þar, Bústaðaveg–Reykjanesbraut, að ef það væri ekki fyrir Borgarlínuna og það að hún myndi létta á stofnbrautakerfinu þá duga í raun nær engar lausnir. En lausnirnar sem nú er verið að kynna þar hanga á því að almenningssamgöngur verði stórefldar. Allt hangir þetta því saman en nú þarf að hugsa þetta stærra og fyrir allt suðvesturhornið og svo auðvitað líka Akureyri.