157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:08]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir fína ræðu hér. Mig langar til að halda áfram með það sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason var að ræða. Það breyttist ansi mikið á Akranesi þegar Hvalfjarðargöng urðu til og má eiginlega segja að þá hafi ýmislegt breyst. Það má eiginlega segja að Akranes hafi orðið að eins konar úthverfi Reykjavíkur þegar Hvalfjarðargöngin komu. Það sást m.a. á því að ákveðnar sérverslanir gáfu eftir og hlutir sem urðu undir í samkeppninni við að það opnaðist þessi gátt til Reykjavíkur. Þetta hafði líka mjög jákvæð áhrif á t.d. fasteignaverð á Akranesi og stórbreytti því atvinnusóknarsvæði sem var raunhæft fyrir Akranes. Það má segja að þarna hafi opnast risamarkaður og má til sanns vegar færa að vísa þar til þeirra athugana sem Vífill Karlsson hefur gert varðandi ávinning af gerð Hvalfjarðarganga og þar er augljóst að hlutur Akraness er stór. En nú velti ég fyrir mér í ljósi t.d. þeirra jarðelda sem hafa verið á Reykjanesinu hvort það geti ekki orðið sú staða uppi að byggðin muni í auknum mæli færast til norðurs, þannig að ég ætla að leyfa mér að segja að svæði eins og Akranes gæti hreinlega orðið að úthverfi Reykjavíkur þótt það sé kannski ekki að gerast alveg á næstunni. Mig langar til að heyra vangaveltur hv. þingmanns um það hvort hann sjái fyrir sér að þarna gæti orðið í rauninni samfelld byggð. Svo kem ég að frekari spurningum í síðara andsvari.