157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:13]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir svörin og áhugaverðar vangaveltur. Mig langar líka að taka undir með honum gagnvart hugmyndum um Sundabrautina, það mjög svo mikilvæga mannvirki sem mun koma til með að skipta gríðarlegu máli fyrir innkomu Vestlendinga til Reykjavíkur. Ég þykist nú vita að við höfum beðið eftir þeirri tengingu ansi lengi. Það er ljóst að við munum í raun komast inn í miðbæ Reykjavíkur á innan við 40 mínútum ofan af Akranesi, sem er áhugaverð staðreynd. Ég velti hins vegar fyrir mér í ljósi þess að við höfum auðvitað ekki beinlínis áhuga á því að verða úthverfi Reykjavíkur — við viljum að sjálfsögðu að Akranes og Vesturland byggist upp þannig að þar verði blómleg og sjálfbær byggð og að þar verði atvinnutækifæri, það verði ekki allir að keyra suður til Reykjavíkur, kannski frekar á hinn veginn, af því að það er takmarkað pláss fyrir atvinnufyrirtæki í Reykjavík, þannig að menn keyrðu frekar upp á Skaga til að sækja sér vinnu eða upp á Grundartanga. Ég hef áhyggjur af einu og það er hvernig við ætlum að samþætta þau kerfi sem við erum með í dag. Í dag er það þannig að Akranes, vil ég leyfa mér að segja, er safn sveitarfélaga og ber í raun ábyrgð á ákveðnum hluta af þjónustu, t.d. heilbrigðisþjónustu, löggæslu og öðru gagnvart Vesturlandi. Ég velti fyrir mér hvernig fer með þá stöðu, að við séum þar safn sveitarfélaga? Hver myndi taka við ef við yrðum síðan skilgreind inn á höfuðborgarsvæðið með einhverjum hætti? Væri þá alla vega Akranes ekki að afsala sér einhverju slíku eða það skilgreint í rauninni með Reykjavík og þeirri þjónustu sem þar er veitt? Það yrði þá til nýr staður á Vesturlandi eða er líklegt að Akranes t.d. byggist upp sem sérstök þjónustueining? Ég vil t.d. nefna að við erum með mjög öflugt sjúkrahús og það er ekkert því til fyrirstöðu að t.d. Reykvíkingar nýti betur það sjúkrahús. (Forseti hringir.) Það hefur verið afstaða núverandi forstjóra Landspítalans að lausnir fyrir Landspítalann, manneklu hans (Forseti hringir.) og vandræðin þar, væri að nýta það sem væri í boði hjá t.d. á Akranesi og á Selfossi.

(Forseti (KÁB): Forseti vill minna á ræðutímann.)