borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Ég sé og við finnum það bara öll að við verðum það innblásin þegar við byrjum að hugsa um þetta að ræðutíminn bara dugar okkur ekki. Af því að þingmaðurinn nefndi bæði áhyggjur sínar en líka hugsanleg tækifæri þá held ég að við verðum að hafa augun á hvoru tveggja; kannski ekki síður horfa á tækifærin sem leiða af því að hugsa svona stærra. Kragasjúkrahúsin svokölluðu eru alls ekki í Kraganum. Þau eru einmitt á Akranesi, í Keflavík og á Selfossi. Að hugsa þau sem hluta af heild á þessu borgarsvæði er auðvitað bara mjög spennandi, mjög áhugavert út frá mjög mörgum þáttum. En þetta er bara einn af mörgum þáttum sem þarf að huga að og ég held raunar að Reykjanes og Akranes, þ.e. sveitarfélögin, hafi í raun verið svolítið á undan sinni samtíð þegar þau lögðu saman hafnir sínar í Faxaflóahafnir. Þau hafa verið saman við borðið í Orkuveitu Reykjavíkur og í raun hefur bara um langt skeið verið eðlislægt að hugsa um þetta svæði sem miklu meiri heild þar sem Grundartangi er bæði atvinnusvæði Akraness og Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins. Þannig held ég að þurfi að hugsa um Hvítár-Hvítársvæðið í heild sinni af því að þessi þróun hefur í raun kannski, eins og öll þéttbýlismyndun á Íslandi, mótast af því að fólk og fyrirtæki hafa valið einhverja hluti. Við erum hins vegar kannski ekki búin að taka inn hver veruleikinn er orðinn og hvernig við getum þjónustað svæðið betur — hvaða innviði vantar og hvernig við getum stutt best við (Forseti hringir.) það sem er styrkur svæðisins og best við þá stöðu og þau tækifæri sem við stöndum frammi fyrir.