borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Frú forseti. Við ræðum hér aftur þessa þingsályktunartillögu um borgarstefnu. Ég verð að viðurkenna að ég hef mjög mikinn áhuga á þessu máli sem slíku og hér hafa verið fluttar áhugaverðar ræður og verið áhugaverð samtöl um mikilvægi borgarsamfélaga og sjálfbæra þróun svæða. En, virðulegur forseti, ég ætla samt að leyfa mér að vera gagnrýnin og ég ætla að vera gagnrýnin á þingsályktunartillöguna sem slíka. Ég hef áður sagt það í ræðum að hér er texti á mörgum blaðsíðum sem er að mörgu leyti mjög áhugaverður, allt í greinargerð þingsályktunartillögunnar. Málið heitir borgarstefna fyrir árin 2025–2040. Mér þykir engan veginn skýrt nákvæmlega hver þessi stefna er á þessum tíma. Hver á að gera hvað og hvað á það að kosta, hvaða aðgerðir fylgja? Ekkert slíkt er að finna í þessari þingsályktunartillögu. Ég hef áður gagnrýnt það mjög og tók hér til máls líka í fyrri umræðu og hef rætt þetta við hæstv. innviðaráðherra sem leggur þetta plagg hér fram.
Þetta eru þrír stuttir kaflar. I. kafli er um framtíðarsýn og meginmarkmið þar sem eru komnar inn núna, frá því sem var á síðasta þingi, frekari skilgreiningar og ég held að það sé vel. Það er II. kafli, um lykilviðfangsefni, sem segir bara að lykilviðfangsefni stefnunnar skuli vera atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun, alþjóðleg samkeppnishæfni, innviðir og umhverfi, heilbrigðis- og félagsmál, menntun og menning. Svo er það III. kafli, samstarf ríkis og borgarsvæðanna, og hér stendur, með leyfi forseta:
„Innviðaráðherra verði falið að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkisins og borgarsvæðanna sem stuðli að því að markmiðum borgarstefnu verði náð. Á þeim vettvangi verði inntak borgarstefnu þróað þannig að þær áherslur sem hér eru settar fram leiði til beinna skilgreindra aðgerða og/eða samþættingar við aðgerðir í fyrirliggjandi áætlunum hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga, og styðji þannig við að markmiðum verði náð.“
Virðulegur forseti. Ég hefði kosið að hæstv. ráðherra hefði hreinlega stofnað þennan samstarfsvettvang ríkis og borgarsvæðanna. Ég held reyndar að hann hefði ekki þurft neina þingsályktunartillögu til að gera nákvæmlega það, en teldi hann sig þurfa þess væri hægt að koma með hana fyrir þingið og koma svo með niðurstöðuna frá þessum samstarfsvettvangi hingað inn í þingið þar sem raunverulegar aðgerðir og markmið kæmu í þinglegu plaggi sem alþingismenn gætu tekið fyrir, samþykkt eða gert breytingar. En það fer ekki mikið fyrir slíku í þessari þingsályktunartillögu sem hér um ræðir. Þá hefði ég kannski haldið að nefndarálitið myndi fylla eitthvað inn í en það er nú með styttri nefndarálitum sem ég hef lesið í gegnum tíðina, er algjör stubbur, en engu að síður er vísað í það að nefndin afgreiddi þetta mál á síðasta þingi og vísað í það nefndarálit.
Virðulegur forseti. Ég minnist þess ekki að hafa oft séð slík nefndarálit, það kann að vera að hér sé verið að búa til einhverja nýja hefð. Það er auðvitað hægt að nálgast það nefndarálit á vefnum þannig að ef fólk vill raunverulega komast að því hvað var gert þá þarf það að rekja sig svolítið áfram. Og ég segi það, virðulegur forseti, líka vegna þess að ég óttast að hér séu búnar til svolítið falskar vonir og væntingar um hvað þetta plagg þýðir. Það kom bersýnilega í ljós við fyrri umræðu þessa máls núna á þessu þingi þar sem ákveðnir þingmenn vildu túlka þetta sem svo að hér væru jú ákveðnar skyldur höfuðborgarinnar. Hér væri alveg ljóst að Reykjavíkurflugvöllur ætti sko ekki að fara neitt, það hlyti að standa einhvern veginn í þessu plaggi þó að það standi auðvitað alls ekki hér og aðrir þingmenn vildu meina að þetta ætti að byggja undir til að mynda Sjúkrahúsið á Akureyri, Háskólann á Akureyri og annað þess háttar. Ég er bara ekki sammála því að það standi hér, enda kom í ljós að þingmenn voru ekkert sammála um það sem stæði þarna né hæstv. ráðherra.
Virðulegur forseti. Ég er að benda á þetta vegna þess að mér finnst ekki fara vel á því að við séum að afgreiða hér þingsályktunartillögur sem eru svo óskýrar eins og sú sem hér liggur undir.
Ég tek heils hugar undir með hv. framsögumanni nefndarálitsins, Degi B. Eggertssyni, þegar hann talaði um mikilvægi höfuðborgarsvæðisins, mikilvægi höfuðborgarinnar fyrir landið allt og samkeppnishæfnina. Mörgu af því sem hv. þingmaður sagði í sinni ræðu get ég verið hjartanlega sammála og ég er sammála því að það sé mikilvægt fyrir landið allt að við eigum öfluga höfuðborg. Ég get líka tekið undir þá umræðu sem skapaðist hér áður að þetta snýst um samkeppnishæfni og hvar börnin okkar vilja búa, að fólk vilji búa áfram á Íslandi vegna þess að hér séu atvinnutækifæri, hér sé samfélag sem það vill samsvara sig við og vill búa í, samgöngur séu með góðum hætti og hægt sé að lifa fjölskyldulífi eins og fólk óskar. Allt þetta tek ég undir og þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að það sé öflug höfuðborg.
Ég tek líka heils hugar undir að Akureyrarbær, sem ég myndi reyndar vilja ganga lengra og segja Akureyrarborg, eigi að vera höfuðborg Norðurlands. Ég myndi segja höfuðborg norðurslóða og ég vil vera stórtæk í því, mér finnst það mjög mikilvægt sveitarfélag og á að spila ofboðslega stórt hlutverk á Norðurlandi en ekki síður fyrir samkeppnishæfni landsins alls. Þannig að, virðulegur forseti, ég get tekið undir ýmsa orðræðu sem hér hefur verið undir þessu máli en gagnrýni mín er að mér finnst hún ekki birtast í þessari þingsályktunartillögu.
Það er líka eitt sem ég er eiginlega bara alveg ósammála — fyrir utan svæðisborgarheitið sem mér finnst skrýtið og ég hefði frekar viljað segja bara Akureyrarborg og nærsveitir eða eitthvað, en allt í lagi, ef Akureyringar sjálfir vilja vera svæðisborg þá skal ég ekki vera með mikla fýlu gagnvart því. En þegar talað er um borgarsvæði Reykjavíkur og verið að skilgreina höfuðborgarsvæðið einhvern veginn frá Hvítá til Hvítár þá er ég bara ósammála því. Ég veit að hér eru margir sem hafa verið á sveitarstjórnarstiginu og ég hef hitt nokkra á þessu svæði sem eru í sveitarstjórn og spurt: Viljið þið vera hluti af borgarsvæðinu? Þá hafa viðkomandi sveitarstjórnarfulltrúar nú bara sagt nei eða þau vita ekkert um hvað ég er að tala um af því að þau eru ekki meðvituð um þessa vinnu sem hér er.
Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því í framsöguræðu hv. þm. Dags B. Eggertssonar að hann fór að vísa í lagaskil eða eitthvað slíkt, að það þyrfti að tryggja að þetta samræmdist öðrum lögum, ef ég heyrði rétt. Ég finn ekkert um það í nefndarálitinu en ég hafði bent á það í fyrri umræðu hvort það væri alveg á hreinu að það að skilgreina eitthvert borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæði í einhverri þingsályktunartillögu frá Alþingi Íslendinga stangaðist ekki á við nein önnur lög eða stefnumörkun frá Alþingi eða hinu opinbera gagnvart þessum sveitarfélögum sérstaklega. Þá er ég bara að vísa í alls konar skilgreiningar varðandi þéttbýli, dreifbýli, mögulega stuðning hins opinbera til dreifbýlla svæða og annað þess háttar. Það getur vel verið að það hafi verið fjallað um þetta í hv. umhverfis- og samgöngunefnd en ég fann það alla vega ekki þegar ég var að renna yfir þau nefndarálit sem fram hafa komið.
Það er eitt sem ég verð að nefna líka og það er jöfnunarsjóður. Þetta mál kom fram snemma á síðasta þingi og þá hélt ég ræðu svipaðri þessari sem ég hef verið að flytja núna og gagnrýndi þetta með mörgum hætti. Mér fannst eins og þessi stefna væri sett fram fyrst og fremst til þess að færa rök fyrir ákveðnu höfuðborgarframlagi úr jöfnunarsjóði og breytingum á jöfnunarsjóðnum. Þá kom hæstv. innviðaráðherra hér upp og sagði að það væri engin tenging þar á milli, alls engin, tengdist ekki neitt. Og, virðulegur forseti, við afgreiddum breytingar á lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga á síðasta þingi, sem betur fer með þeirri breytingu að vera ekki að krefja sveitarfélögin eða ýta við þeim þannig að þau hækki útsvarið sitt upp í botn, sem betur fer náðum við í minni hlutanum þeirri breytingu í gegn, við í Sjálfstæðisflokknum öllu heldur. En svo þegar þetta mál var rætt hér í fyrri umræðu fyrir einhverjum dögum síðan eða viku þá minnist ég þess að hv. þm. Jón Gnarr kom hér upp og fór að býsnast yfir því að fólk væri að tala um einhverjar kröfur á höfuðborgina og hvað það þýddi nú eiginlega og þá þyrfti að greiða sérstaklega fyrir það. Þá spratt hæstv. innviðaráðherra hér upp og sagði: Já, já, við erum búin að gera það í jöfnunarsjóðnum, þannig að það fer nú ekki alveg saman hljóð og mynd hjá þessari ríkisstjórn. En hvort heldur sem er, hvort sem þessi borgarstefna hafi verið gerð til að undirbyggja það sem svo var ákveðið hér á Alþingi Íslendinga, að heimila höfuðborgarálag — og ég hef nú haldið ýmsar ræður um það. Ég er sjálf ekki sammála því en ég er líka svona málamiðlunarmanneskja og veit að það mál er búið að fara í gegnum alls konar þeytivindur og það var ákveðin niðurstaða. En ég held að það þýði samt sem áður, virðulegur forseti, að hæstv. ráðherra og stjórnarmeirihlutinn allur þurfi nú aðeins að fara að vanda sig í sinni orðræðu, að það sem þau segi sé eitthvað sem þau raunverulega meini en þýði ekki eitthvað allt annað, það hefur svolítið borið á því á yfirstandandi þingi og líka á síðasta þingi.
En að því sögðu, virðulegur forseti, segi ég: Í þessari greinargerð er margt mjög gott sem ég get tekið heils hugar undir og umræðan hér hefur verið mjög skemmtileg og áhugaverð um mikilvægi borgarsamfélaga og mikilvægi höfuðborgar fyrir samkeppnishæfni Íslands og það get ég tekið undir. En mér finnst ekki góður bragur á því að Alþingi Íslendinga afgreiði þingsályktunartillögu sem þessa um einhverja stefnu og markmið, sem er í rauninni engin stefna og markmið heldur er bara að segja: Við eigum að vinna einhverja stefnu og markmið. Þá segi ég við hæstv. ráðherra að hann getur bara farið og gert það og komið svo með það hingað til þingsins.