157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:30]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir mjög góða ræðu. Mig langar aðeins að nefna hér í upphafi að auðvitað er þetta ákveðin byggðastefna sem þarna birtist, einhver stærsta byggðaaðgerð Íslandssögunnar. Sennilega kristallast hún í því að það segir í lögum að Stjórnarráðið og æðstu stofnanir skuli staðsettar í Reykjavík. Sú aðgerð hefur nú örugglega heldur betur stutt við uppbyggingu í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu.

Mig langar hins vegar að nefna nokkra hluti af því að hv. þingmaður var hér að tala um svæðisborgina Akureyri og áhrifasvæði Akureyrar. Hvað nær áhrifasvæði svæðisborgarinnar Akureyrar langt í austur? Heldur hv. þingmaður að íbúar á Fáskrúðsfirði njóti mikils af Akureyri? Það er verið að tala hér um atvinnusvæði. Ég veit ekki til þess að það séu t.d. margir í mínu héraði, Skagafirði, sem eru að keyra á milli, hvað þá í Húnavatnssýslum. Fyrst menn eru að stíga þetta skref — og ég er sammála hv. þingmanni um að mér finnst svolítið sérstakt að Akureyri sé ekki bara tilgreind sem borg heldur einhver svæðisborg — af hverju stíga menn þá ekki það skref að taka Egilsstaði undir sem sambærilegan þjónustukjarna fyrir Austurland? Og á hvaða áhrifasvæði heldur hv. þingmaður að Patreksfjörður og Ísafjörður sé, er það með Akureyri eða Reykjavík?