borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og sérstaklega fyrir að minna mig á eitt sem ég gleymdi að ræða í ræðu minni. Já, þetta er eins konar byggðastefna. Hér var verið að ræða áðan um ráðuneyti og að það væri kannski ekkert mál að færa einhver ráðuneyti til Akureyrar. Það er nú reyndar svolítið mál, það þarf að breyta stjórnarskránni til þess að gera það og okkur hefur nú ekkert gengið vel með það. Ég held reyndar að þegar þessi stefna hér er lesin þá sé það alveg á hreinu að í Reykjavík er stjórnsýsla landsins, þannig að mér finnst verið að festa það í sessi frekar en hitt að hér eigi öll ráðuneyti að vera. En í því samhengi vildi ég nefna að við vorum með ráðherra á síðasta kjörtímabili, hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem þá var ráðherra í nýju ráðuneyti og braut þetta svolítið upp. Hún auglýsti m.a. eftir því að starfsmenn gætu starfað fyrir hennar ráðuneyti óháð staðsetningu. Í staðinn fyrir að fara í það að flytja stofnanir eða störf markvisst út á land þá var bara opnað fyrir þann möguleika að fólk gæti vissulega starfað fyrir ráðuneyti og verið ráðuneytisstarfsmenn þótt það búi á Siglufirði, Ísafirði, Akureyri, Sauðárkróki, Vestmannaeyjum eða hvar sem er.
Hv. þingmaður fór einmitt að spyrja ákveðinna lykilspurninga þegar kemur að því að skilgreina þessa svæðisborg. Ég held að þarna kristallist svolítið vandamálið sem verður þegar taka á borgarsvæðið Reykjavík aðeins lengra en það sem við þekkjum almennt sem höfuðborgarsvæðið. Þá er ákveðið að fara alveg inn á Hvítá-Hvítá og þá er maður kominn á Akureyri og til að ná einhvers konar pólitískri samstöðu um eitthvað þá þarf líka að fara að stækka og hugsa það sem eitthvert áhrifasvæði. En þá erum við líka komin með ákveðna landshluta sem eru bara algjörlega út undan í þessari upptalningu. Þá komum við kannski að því sem hv. þingmaður sagði í upphafi að þetta væri byggðastefna en við erum samt með byggðaáætlun og þar eru aðgerðir og þar eru markmið og þar er einhver ábyrgur fyrir einhverju og það er einhver kostnaður við eitthvað. Ég veit að það að skrifa svona plagg var eitt af þeim markmiðum, ég er meðvituð um það, en gagnrýni mín snýr að því hvernig það er fram sett. En ég get heils hugar tekið undir með hv. þingmanni, (Forseti hringir.) ég held að það hefði farið betur á því að segja bara Akureyri, borg. Svo höldum við okkur bara við byggðaáætlun og tölum fyrir öðrum svæðum þar. (Forseti hringir.) Það þarf ekki að taka svona mikið undir í nákvæmlega þeim pælingum sem hér eru undir.