borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það sem ég er í raun og veru að reyna að ná hér fram, virðulegur forseti, er það að jú, við erum nefnilega með byggðaáætlun og byggðaaðgerðir og okkur hefur því miður reynst erfitt í gegnum tíðina að einhvern veginn samræma það sem við erum að gera hér á Alþingi varðandi þær áætlanir og plön sem við erum að teikna upp. Meira að segja hefur okkur gengið erfiðlega að skilgreina landið. Þú ert með löggæsluumdæmi, þú ert með heilbrigðisumdæmi, þú ert með Samtök sveitarfélaga og allt skarast þetta. Allt skarast þetta. Svo erum við hér komin með nýtt plagg sem heitir borgarstefna og þar erum við enn og aftur að reyna að skilgreina svæðið. En eins og ég les þetta þá er í raun og veru verið að tala um að tvískipta því, það er annars vegar höfuðborgarsvæðið og áhrifasvæði þess, bæði hvað varðar menningu og listir og atvinnulíf, og hins vegar Akureyri sem á „beisiklí“ að þjóna, afsakið, virðulegur forseti, þá restinni af landinu einhvern veginn. En þegar þú skoðar þetta og ef þú horfir á þetta með byggðagleraugunum, sem ég er að reyna að gera, þá er það augljóst að það eru stór landsvæði sem eru út undan í þessari vegferð. Nefni ég þar bæði Austurland og Vestfirði sérstaklega. Mér er ómögulegt að skilja það, ef menn voru að fara hér að reyna að skilgreina einhverjar svæðisborgir eða einhverja bæjarkjarna sem ættu að vera lykilþættir í uppbyggingu á sínu svæði, þjónustumiðstöðvar, (Forseti hringir.) af hverju var ekki gengið alla leið og Austfirðir og Vestfirðir sérstaklega teknir með inn í þessa áætlun. Það er óskiljanlegt.