157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:37]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið og ég skil algerlega sjónarmið hv. þingmanns og þau hafa einmitt heyrst í þessari umræðu. Ég reyndar tel að vandamálið sé frekar vegna þess að það sé verið að reyna að stækka þessi áhrifasvæði svo mikið. Vegna þess að við höfum jú verið með byggðastefnu og byggðaáætlun og hér var einmitt vísað í Ísland 2020, áætlanir, og höfuðborgarsvæðinu fannst á einhverjum tímapunkti það svolítið undanskilið í allri umræðu um byggðaþróun og þá var umræða um að það væri svo mikilvægt að við hefðum líka öflugt höfuðborgarsvæði og öfluga höfuðborg fyrir samkeppni landsins. Ég tek alveg undir það og þess vegna hefur það verið hluti af byggðaáætlun.

Það er alveg klárt að í þessu plaggi eru Vestfirðir algerlega út undan, Austfirðir og Austurland líka, Húnavatnssýslur og Skagafjörður og allt þetta svæði er ekki fjallað um hér, en ég held að í upphafi hafi ekki staðið til að fjalla um landið allt hér því að þá hefðum við getað verið með byggðastefnu og byggðaáætlun sem við erum jú með. Að einhverju leyti held ég að vandamálið verði mögulega í einhverju pólitísku samráðsferli og að ná saman um eitthvað, þá hafi þeir farið að stækka þetta svæði svo mikið. Nú er borgarsvæði Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins t.d. búið að teygja sig mjög langt inn í kjördæmi hv. þingmanns. Ég veit það ekki, vilja Borgnesingar vera hluti af höfuðborgarsvæðinu? (Gripið fram í: Þeir hafa ekki verið spurðir.) Ég held nefnilega, virðulegur forseti, að það sé nákvæmlega málið, að þeir hafi ekki verið spurðir, enda var ég að vísa í það í ræðu minni áðan að ég hef rætt við bæjarfulltrúa á þessum svæðum sem kannast ekkert við þetta, hafa ekki verið spurðir og finnst það ekkert áhugavert. Ég er því ekki viss um að neinum sé greiði gerður með því að fara að skilgreina höfuðborgarsvæðið frá Hvítá-Hvítá eins og gert er hér sérstaklega í þessu plaggi.