157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:39]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir ræðuna og vildi fyrst og fremst bregðast við því að stefnan væri ekki skýr eða í hverju hún fælist. En það er í raun kaflinn um framtíðarsýn og meginmarkmið sem kannski lætur ekki mikið yfir sér en um leið og þetta er lesið þá er nú býsna afgerandi um hvað þetta snýst. Þar er m.a. svarað spurningum sem hér hefur verið velt upp eins og með afmörkun svæðisins og hvað í þessu felist. Það er hins vegar alveg rétt og það kemur líka skýrt fram að aðgerðaáætlunin er eftir. Í raun held ég að það skipti máli að setjast yfir það verkefni að gera þróunaráætlun fyrir þessi svæði og skoða hvaða sviðsmyndir eru varðandi framtíðarþróunina og það getur verið mjög áhugaverð umræða.

Ég gæti trúað því að það sé bara alveg rétt að það sé einstaka sveitarstjórnarfólk sem hafi ekki sett sig inn í þetta eða hugsi ekki um allt suðvesturhornið sem eina heild. Ég stóð þó fyrir fundum þeirra á sínum tíma þegar ég var borgarstjóri og kallaði saman fólk í Höfða, bara til þess að prófa þessa umræðu og hvort fólk sæi skynsemi í því að hugsa meira um þessi svæði sem eina heild, og fékk mjög jákvæð viðbrögð. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu samþykktu, það var eiginlega ein af kveðjutillögum mínum, að fara að gera svona grunn að þróunaráætlun fyrir Hvítá-Hvítá sem liggur fyrir í drögum og væri alveg efni í umræðu hér á þinginu eða annars staðar, þannig að þessi hugsun er byrjuð. En af hverju á ekki einhver einstaklingur að hafa einhvern veginn neitunarvald? Það er verið að skilgreina borgarsvæði út frá því sem raunverulega er orðið í gegnum atvinnusókn og búsetusvæði og þjónustusvæði. Það er orðið. OECD lítur á borgarsvæðið svona, (Forseti hringir.) eiginlega sama hvað okkur finnst um það, vegna þess að fólk er farið að hegða sér svona. Það er líka mikilvægt að taka það svolítið inn, það þýðir eitthvað, að við eigum að bregðast við og sjá tækifærin í því.