157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:41]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma hér upp í andsvar við mig. I. kaflinn, um framtíðarsýn og meginmarkmið, lætur kannski ekki mikið yfir sér. En ég les hér eina setningu upp úr honum, með leyfi forseta:

„Með skipulagi og uppbyggingu innviða verði stuðlað að sjálfbærum borgarsamfélögum sem verði eftirsótt til búsetu og atvinnu og skapi umgjörð fyrir efnahagslega drifkrafta og nýsköpun. Þannig verði samkeppnishæfni landsins efld og vexti þjóðarinnar mætt með því að stuðla að fjölbreyttum búsetukostum, fjölgun fjölbreyttra atvinnutækifæra og auknu aðgengi íbúa að þjónustu, þar sem tekið verði mið af ólíkri stöðu og þörfum allra íbúa.“

Virðulegur forseti. Þetta eru bara ágætissetningar á blaði en nákvæmlega þegar þetta er lesið þá skil ég líka svo vel þá sem standa einmitt utan þessa borgarsamfélags og segja: Bíddu, hvað með okkar svæði? Á ekki líka að stuðla að uppbyggingu innviða þar sem styðja sjálfbæra uppbyggingu þeirra svæða? Ég held þess vegna að við séum ekkert endilega að gera neinum greiða með slíkum markmiðum.

Hv. þingmaður kom inn á þróunaráætlanir. Jú, jú, gott og gilt. Afstaða mín mótast samt af því, hafandi verið í sveitarstjórnarmálum lengi, og einmitt á þessu samstarfssvæði höfuðborgarsvæðisins, að það er bara alveg nógu erfitt að ná sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu saman um rekstur á Sorpu, á Strætó, á slökkviliðinu, á svæðisskipulaginu. Þannig að ef við ætlum að fara að stækka það enn frekar — ég minnist þess nú, því að Kjósin er líka hluti af höfuðborgarsvæðinu og hluti af mínu kjördæmi, að þeim finnst þau algerlega skilin út undan, enda eru þarfir þeirra og væntingar allt aðrar en annarra sveitarfélaga á þessu svæði.

Ég held því, virðulegur forseti, að engum sé greiði gerður með því að stækka þetta svæði svona. En að því sögðu: Já, aðgerðaáætlun endilega, hún ætti einmitt að koma hingað fyrir þingið. Ég held að þar gætum við tekið meiri og mikilvægari pólitíska umræðu um eitthvað sem þingskjal per se.