borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Ég ítreka að hér er verið að horfa á, með leyfi forseta, fúnksjónel svæði, sem sagt það er verið að skoða hversu hátt hlutfall í jaðri svæðisins sækir vinnu eða þjónustu inni í kjarnanum. Það er skilgreining á því sem, með leyfi forseta, er kallað fúnksjónel borgarsvæði. Af hverju skiptir það máli? Vegna þess að þá fer að reyna meira á sameiginlega innviði eða þá innviði sem liggja á milli. Þá eru meira eða minna allir þættir í samspili. Hv. þm. Ólafur Adolfsson nefndi hér sem dæmi að betri tenging á milli Akraness og Reykjavíkur með Hvalfjarðargöngum hafði áhrif á sérvöruverslun á Skaganum. Þannig má sjá fyrir sér ýmislegt, bæði sem getur verið áskorun eða falið í sér einhverjar breytingar sem geta kallast erfiðleikar en líka einhver tækifæri, að vera hluti af stærri markaði og stærra þjónustusvæði og þar fram eftir götunum.
En ég held að við höfum ekki öll svörin hér. Verkefnið núna liggur hins vegar fyrir og er að fara af stað og ég vonast til að íbúar og hagsmunaaðilar sjái tækifærin í að hugsa aðeins stærra um nærumhverfi sitt. Svo skil ég bara mjög vel að þegar það kemur borgarstefna og áhugaverð umræða um hana þá spyrji aðrir þéttbýliskjarnar fyrir austan og vestan: En bíddu, hvað erum við þá ef ekki borgir? Ég held að umræðan snúist ekki um það að hérað eða firðirnir vilji kallast borg heldur kannski einhvers konar höfuðstaður og hvað það merkir þá. Kannski smitar þetta bara einhverri jákvæðri og áhugaverðri umræðu um þróun þessara svæða sem heildstæðari svæða og verður þá einnig vonandi til góðs frekar en að það skapist um þetta einhver rígur milli þeirra svæða og svæðisborgarinnar Akureyrar og svæðisins hér í kringum Reykjavík.