157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:46]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið og get tekið undir þetta dæmi sem nefnt er hérna, Hvalfjarðargöngin og hvað þau hafa opnað á, m.a. sérvöruverslanir, enda verslar sú sem hér stendur oft í tískuvöruversluninni Nínu á Akranesi svo því sé til haga haldið. En það sem hv. þingmaður er að segja hér: Eigum við að hugsa svolítið stærra? Ég held að það sé alveg hægt að gera það en ég sé ekki alveg að við þurfum þetta þingplagg til. Ég velti fyrir mér: Hvaða áhrif hefur þetta á önnur lög eða aðrar stefnumarkanir frá þinginu? Ef við erum að tala um samgöngumálin þá má alveg velta fyrir sér: Viljum við þá fara að breyta skipulagslögum og stækka mögulega svæðisskipulag? Nú er höfuðborgarsvæðið, ef ég man rétt, eina svæðið sem þarf að vera með lögbundið svæðisskipulag, þó að fleiri svæði hafi gert það, sem er bara mjög gott, og ég held að það sé af hinu góða að vera með svæðisskipulag, ég held að það sé mjög gott. En ég er ekki viss um að ég myndi bjóða í það að svæðisskipulagið væri frá Hvítá til Hvítár og taka öll sveitarfélögin undir í það þó að það sé mikilvægt að horfa á það. Ég vil sjá landsskipulag sem bara uppdrátt af landinu öllu og ákveðna grunninnviði setta þar niður en ég sé ekki að okkur sé endilega greiði gerður með því að þenja svæðin svona út þó að, eins og hv. þingmaður talar hér, hér séu einhver virk svæði eins og OECD hefur skilgreint það. Gott og vel, það getur hjálpað okkur í ýmsum ákvörðunum. En hvað nákvæmlega þýðir það og hvað gerist núna? Hvað er það sem Alþingi er að samþykkja?

Virðulegur forseti. Ég verð að segja það enn og aftur hér í púlti Alþingis að hér erum við að ræða um einhverja borgarstefnu sem ég hef sagt mína skoðun á, mér finnst hún mjög óskýr. Á sama tíma er þessi ríkisstjórn stöðugt að vísa í það að hún sé að vinna atvinnustefnu. Atvinnustefna, hún á að bjarga öllu. Það er planið, atvinnustefna. Maður myndi þá halda að atvinnustefna væri kannski eitthvað rosalega mikilvægt fyrir landið allt, bæði höfuðborgarsvæðið og Akureyri og landið allt. Nei, en það er ekki á þingmálaskrá. Það ætlar ríkisstjórnin ekki að leggja fyrir Alþingi Íslendinga til að taka til umræðu.